Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 126
122
BÚNAÐARRIT
Þau taka fyr til starfa að vorinu en þau gerðu áður.
Sum búin ganga einnig lengri og skemri tíma að vetr-
inum. Búin sem starfa, og starfað hafa, að vetrinum,
eru auk Hvítárvallabúsins, þar sem mjólkurskólinn er,
Arnarbælisbúið, Birtingaholtsbúið, Hjallabúið, Kjósarbúið,
Laxárbakkabúið og Yxnalækjarbúið.
Þá má og geta þess, að í sumum smjörbúasveitun-
um hefir kúpeningur aukist heldur hin siðari árin. Og
enn er þess að minnast, að í nokkrum smjörbúum hefir
félögunum verið að fjöiga til þessa. Þetta alt, hvað
með öðru, hefir stutt að aukinni smjörframleiðslu þessi
siðustu árin.
Um söluverðið, sem talið er í aftasta dálki skýrsl-
unnar, er það að segja, að það er miðað við hvað smjörið
hefir selst að meðtöldum öllum kostnaði. Tölurnar eru
bygðar á skýrslum stjórnarráðsins um sölu smjörsins er-
lendis. Frá þessari söluverðsupphæð dragast svo sölu-
laun og annar útlendur kostnaður. Sá kostnaður er að
jafnaði 5—7 aurar á hvert smjörpund. Dragi maður
þann kostnað frá söluverðinu, þá hefir fengist fyrir
smjörið fjögur árin síðustu, er skýrslan getur um, ná-
lægt því, er hér segir:
Árið 1907 175000 kr.
— 1908 200000 —
— 1909 230000 —
— 1910 250000 —
Fróðlegt er að sjá, hvernig hið útflutta smjör frá
smjörbúunum skiftist niður á sýslurnar. Eftirfylgjandi
skýrsla sýnir, hvað flutt hefir verið út af smjöri úr
hverri sýslu, þar sem smjörbú eru, árin 1909 og 1910: