Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 130
126
BÚNAÐARRIT.
Um skýrsluna hór á undan er þess að geta, að
smjörið frá þeim búum, sem lögð hafa verið alfarið
niður, svo sem Brautarholtsbúinu, Páfastaðabúinu o. s.
frv., er eigi talið í henni. Einnig er Laxárbúinu slept..
Pví var komið á fót 1905, en tók ekki til starfa fyr en
árið eítir, og bjó þá til um 1300 pd. af smjöri. Síðan
hefir það lítið að hafst, og mun nú i þann veginn að'
leggjast niður.
Möðruvallabúið starfaði ekki sumarið 1907 ; en ann-
ars hafa öll hin búin starfað iengri og skemmri tíma
á hverju ári, eftir að þeim var komið á fót. — Þó er
þess að geta um búið í Dölunum, sem tók til starfa
1905, að það hefir legið niðri siðustu 3 árin. Hvort
það réttir við aftur, er enn óráðið og ekki séð.
Um Kjósarbúið má geta þess, að það seldi alt smjör
sit.t í Reykjavík árin 1908 og 1909. Fáein bú önnur
hafa og selt til Reykjavíkur meira og minna af sínu
smjöri, þar á meðal Hvitárvallabúið.
Enn er þess að minnast, að Arnarbælisbúið, eitt af
elztu búunum, lagðist niður í árslokin 1910. Jafnframt
var þá stofnað nýtt bú í Sandvíkurhreppnum í Plóanum,
er nefnist SanAvíkurrjómábú. Félagar Arnarbælisbúsins
íóru sumir í Yxnalækjarbúið, en hinir, er áttu heima
austan Ölfusár, gengu í þetta nýja Sandvíkurbú. — Þetta
bú er vafalaust langvandaðasta búið, sem stofnað hefir
verið. Skálinn er steinsteyptur, og öll áhöld af beztu
gerð. Það er rekið með mótorafli. Stofnkostnaður þess
mun hafa orðið um 5000 kr.
Að öðru leyti ber skýrslan það með sór, hvað smjörið
er mikið frá hverju búi. Til jafnaðar er smjörið mun
mest frá Rauðalækjarbúinu. Það er flest árin efst á
blaði hvað smjörmagnið snertir. Mest hefir smjörið
orðið hjá því árið 1904, 25000 pd. Siðasta skýrsluárið
fer Baugstaðabúið og Rangárbúið upp fyrir það. Fjórða
í röðinni er svo Hróarslækjarbúið, og þá Arnarbælisbúið.
*