Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 150
146
BÚNAÐARRIT.
og gerir það Ijúffengara. Yerður þá enginn annars var,
en að þetta sé vanalegt smjör.
Einnig er ágætt að hnoða smjörlíkið upp úr áfnm,
einkum hafi rjóminn verið sýiður. Þá verður bæði lykt
og bragð þess eins og af góðu smjöri.
Smjörbúin ættu nú, eða stjórnendur þeirra, að reyna
að innleiða í smjörbúafélögunum notkun smjörlíkis og
spara með því íslenzka smjörið. Það er með öðrum
orðum að auka smjörgeiðina í landinu til sölu. Það
virðist vera kominn tími til þess fyrir menn að athuga
þetta og haga sér eins og hyggnum mönnum sæmir í
þessu efni. Stjórnendur smjöibúa ættu að pantasmjör-
líki i félagi handa félögum búanna, eða fá það fyrir
milligöngu kaupfélaganna. Fengist það þá að líkindum
ódýrara, heldur en að kanpa það hjá kaupmönnum.
Færu menn að nota smjörlíki meira en gert hefir
verið, þá er horfin aðal-ástæðan fyrir því, að vera að
halda eftir af rjómanum til heimilissmjöi gerðar. En um
leið og því er hætt, fá búin meira að starfa, og smjör-
framleiðslan eykst. Búin, sem nú eru^hálfgert á heljar-
þiöminni og liggur við falli, mundu þá reisa sig við og
eflast. Almenn smjöilíkisneyzla mundi einnig gefa stofn-
un nýrra smjörbúa byr undir báða vængi.
Undanfarin ár hafa sunnlenzku smjörbúin smátt og
smátt verið að lengja starfstímann, eins og skýrslan á
bls. 128 sýnir. En betur má, ef duga skal. Lenging
starfstimans miðar að því, að auka smjörframleiðsluna.
í þeim smjörbúasveitum, þar sem kýr eru margar, rrætti
i mörgum árum byija enn fyr að vorinu en gert. er.
Vitanlega hefir áiferðið ætið nokkur áhrif á þetta. Það
verður naumast komið í veg fyrir það að öllu leyti.
En hitt ætti öllum að vera umhugað um, að byrja svo
snemma sem auðið verður.
Það gæti meira að segja komið tiL' tals um þau bú,