Búnaðarrit - 01.01.1912, Side 157
BÚNAÐARRIT.
153
menn, er fengu svo lágt. Aftur eru þeir allmargir, er
fá þetta 7—8 stig.
Meðaleinkunn fyrir öll búin, sem heimsótt voru í
þessu skyni, heflr verið:
Arið 1906 9,3 stig
— 1907 9,5 —
— 1908 9,7 --
— 1909 9,9 —
— 1910 10,0 —
Samkvæmt þessari töflu heflr meðaleinkunnin farið
hækkandi, og ber það vott um batnandi meðfeið á rjóm-
anum, ef altaf er jafn-stranglega dæmt. Bendir það á,
að svona löguð rjómaprófun heflr áhrif. Yæri þessi
prófun víðtækari og gerð oftar, mundi árangurinn verða
enn meiri.
Prbfun rjómans á búunum samfara verðmun á
smjörinu eftir gæðum hans, eða verðlaunum fyrir beztan
rjóma, mundi því vafalaust bœta mjög mjólkurmeðferð-
ina á lieimilunum og styðja að því, að smjörið þyldi
betur geymslu en það gerir nú.
Stundum er sá slæmi galli á rjómanum, að hann
er of þylckur. Gera sumir það með vilja, að hafa hann
þykkan, til þess að áfirnar verði sem minstar. Ber það
eigi sjaldan við, að rjóminn sé 12—13% af mjólkinni.
Er hann þá miklu lakari til smjörgerðar en ella. Hæfl-
legt er talið, að rjóminn sé 15—17°/o, og verður að
setja skilvindurnar eftir því.
Það er mikils um vert, eins og sýnt hefir verið, að
meðferð mjólkurinnar og rjómans á heimilunum sé góð
En eigi hefir minna að þýða, að smjörbústýrurnar kunni
með að fara, er t.il þeirra kasta kemur. Það er þýðingar-
laust, að vanda um meðferð ijómans, ef þær svo spilla
öllu, er á búin kemui.
Bústýrurnar eru misjafnar, eins og annað fólk.
Sumar eru einkar-vel að sér i sínu verki og búa til