Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 159
BÚNAÐARRIT.
155
legt, að slcem eða léleg sýra spillir smjörinu og hefir
þau áhrif, að það geymist ver en ella.
En svo er að athuga það, að smjörgerðarskálarnir
eru víða í óiagi og hvergi nærri eins góðir og þeir ættu
að vera. Sérstaklega kvarta bústýrurnar undan því, að
illa sé dyttað að þeim og að allar veðurbreytingar hafi
því of mikil og skjót áhrif á hitann inni. Þetta er óholt
fyrir smjörgerðina og getur haft í för með sér illar af-
leiðingar.
Mest er um vert, að búa vel um smjörklefann. Hann
verður að vera algerlega súglaus. Sama er í raun og
veru að segja um skálana í heild sinni; þeir þurfa að vera
vátnsheldir og súglausir. Þau búin, sem ganga að vetr-
inum, þurfa að vanda enn betur til skálanna heldur en
hin, er að eins starfa sumartímann.
Á flestum búunum eru áhöldin í góðu lagi. Ein-
staka maður hefir reyndar minst á það, að vér ættum
að fá til búanna þessar nýju strokkvélar, sem gera bæði
að strokka rjómann og hnoða smjörið. Um þessar vélar
er það að segja, að þær eru all-margbrotnar að sam-
setningu, og vandi að stjórna þeim og hirða þær. Sér-
staklega þykir vandfarið með þær hvað hirðingu á þeim
snertir.
Naumast munu smjörbúin fær um það, enn sem
komið er, að ráðast i að kaupa þessar vélar og nota
þær. Vélar af þessari gerð eru dýrar og flestum búun-
um ofviða. Smjörbúsiýrurnar munu heldur ekki vaxnar
því, fæstar þeirra að minsta kosti, að stjórna þeim og
fara með þær. Auk þessa hafa flest stærri búin fengið
sér smátt og smátt fullkomnari áhöld, strokk og hnoð-
unarvél, en þau höfðu áðui, og eru þau enn litt farin
að slitna. Úr þessum áhöldum yrði búunum lítið eða
ekkert, ef þau fengi sér þessar strokkvélar.
Af þessum ástæðum og fleirum verð eg að álita,
að það sé ekki hyggilegt eins og nú stendur fyrir búin,