Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 173
BÚNAÐARRIT.
169
Alls hefi eg haldið 47 fyrirlestra íyrir bændur, auk
kenslunnar á Hölum og á eftirlitsnámsskeiðinu, og verið
að heiman liðlega hálft árið.
Sauðfjárrœktarbúin eru nú 10 alls. Tvö hafa bæzt
við á árinu, í Austur-Húnavatnssýslu á Sveinsstöðum
og í Haga, og í Norður-Þingeyjarsýslu á Ytra Lóni.
Auk þess er verið að reyna hreinræktun og kynblöndur.
með Dalafé austur i Hreppum, en auðvitað þarf sú til-
raun að standa um nokkurt árabil, til þess að áreiðan-
legur árangur fáist. Áhugi bænda á sauðfjárrækt fer
óðum vaxandi, og einkum er það mikil holdsöfnun og
bráður þroski, sem menn sækjast eftir. Verð á góðum
hrútum að haustlagi hefir vaxið mikið, einkum norðan-
lands, og þykja 40—50 kr. fyrir veturgamian hrút eða
eldri ekki hátt verð þar.
Tvær hrútasýningar voru haldnar í haust norður í
Eyjafirði. Miklar líkur eru til, að siíkar sýningar sé
heppileg ráðstöfun til framfara sauðfjárræktinni.
Nautgriparœktarfélögin voru 16 starfandi í árslok
1911. Þar af eru 11 í Sunnlendingafjórðungi, 2 í Vest-
firðingafjórðungi og 3 í Norðlendingafjórðungi. Eins og
vænta má, standa þessi félög föstustum fótum þar, sem
smjörbú eru starfandi. Þar sjá menn áþreifanlega, hvað
mjólkurmagn og smjörgæði mjólkurinnar hafa að þýða.
Nautahaldið er sumum félögunum mjög erfitt, þótt það,
ef rétt er á litið, sé félagsmönnum áreiðanlega bæði
hentugra og ódýrara í heild sinni, heldur en að ala naut-
kálfa á öðrum hvorum bæ eða meira. Nautgriparæktar-
félög Ásahrepps, Skeiðamanna og Hraungerðishrepps hafa
i ár komið upp hagagirðingum fyrir naut, og er það
mjög mikils vert, til þess að sporna við öllum þeim
óskunda, sem lausagangur nauta hefir i för með sér.
Jafnframt hagagirðingunum þyrftu félögin að koma á
samþyktum um kynbætur nautgripa, samkvæmt heim-
ildarlögunum um það efni frá 20. okt. 1905.