Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 176
172
BÚNAÐARRIT.
Valborg Gunnarsdóttir, Skorravík, Dalasýslu,
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Malarrifi, Snæfellsnessýslu,
Pálína Steinadóttir, Narfastöðum, Borgarfjarðarsýslu.
Af verklegum framkvæmdum er það að segja, að
veturinn 1910 —11 voru búin til 6900 ® af smjöri, og
auk þess voru teknir nokkrir ostar.
Hvítárvöllum, 2. jan. 1912.
H. Orönfddt.
Reyndur rjóminn 1911.
Eftir ósk Búnaðarfélags íslands reyndi eg rjómann
frá hverjum félagsmanni þeirra rjómabúa, sem eg kom
á, og gerði athugasemdir um rjómann yfirleitt, og sömu-
ieiðis um flutningsföturnar, sem óhæfar voru undir
rjóma.
Eg leyfi mér nú, eins og vant er, að skýra frá
nöfnum þeirra félagsmanna, sem fengu 12 og 11 stig
fyrir rjómann.
1. Sandvíkurbú. Aðaleinkunn 10,6. Félagsmenn 41.—
12 stig fengu: Votmúli (Þ.), Selfoss (S.), Kaldaðarnes,
Eyði-Sandvík, Litla Sandvík og Geirakot. 11 stigfengu:
Tryggvaskáli, Ásakot, Hreiðurborg, Þórðarkot, Gerðís-
kot, Laugarbakkar, Tannastaðir, Stóra Sandvík, Árbær
(S.), Nes, Háeyri, Bygðarhorn, Björk og Stokkseyri (Guðj.).
9 fengu 10 st., 2 fengu 9, 3 fengu 8 og 1 fékk 7 stig.
2. Hjallabú. Aðaleinkunn 10,5. Félagsmenn 22. —
12 stig fengu Hjalli (G. og K.) og Bakki (G.). 11 st. fengu: