Búnaðarrit - 01.01.1912, Síða 180
176
BÚNAÐARRIT.
flötur, Dyrhólar, Skagnes, Skammidalur (S.), Hólar, Poss (S),
Presthús, Skarðshjáleiga og Kvíaból. 17 fengu 10 stig
14 fengu 9, 6 fengu 8, 3 fengu 7 og 2 fengu 6 stig.
Einkunnirnar frá Oeirsárbúi hafa týnzt hjá mér.
Sökum lasleika gat eg ekki skoðað rjómann á Apár-
búi, Torfastaðabúi og Laxárbakkabúi.
Eg varð því miður þess áskynja, að nokkur af
rjómabúunum strokkuðu rjómann án þess að sýra hann.
Eftir mínu áliti er það stórt spor aftur á bak. í fyrsta
lagi fæst minna smjör, og í öðru lagi verður smjörið
betra annan daginn en verra hinn, eða eftir því hvort
rjóminn, sem sendur er til búsins, hefir verið góður eða
vondur. Ekki er nóg með þetta. Svo er rjóminn geymdur
til næsta dags. Morguninn eftir er hann látinn í strokk-
inn. Þá ættuð þið að gera ykkur ferð þangað, heiðruðu
formenn rjómabúanna, og bragða á rjómanum. Ein-
stöku rjómabú strokka rjómann strax, en þá er bæði
vatnið, sem það er lagt í, of heitt, og hitinn í skálan-
um alt of mikill, svo að smjörið verður alt of kramt.
Eg vil því ráðleggja öllum, sem ekki lótu sýra rjóm-
ann í fyrra sumar, að gera það næsta sumar. Tíminn
leiðir það bezt í ]jós, að þetta er ekki vegurinn, sem
við eigum að ganga til að fá betra smjör, heldur þvert
á móti, eins og eg hefi áður sagt: „Sterk og góð sýra
og bragðgóður rjómi gerir smjörið reglulega gott.“
Það þekkjum við, að allir vilja fá góða rjómabú-
stýru, og er það meira en von. En að hvaða notum
kemur nú góða bústýran, þegar hún má ekki vinna verk
sitt eins og henni var kent það? Eg vil því biðja ykkur,
heiðruðu formenn: stuðlið þið til þess, að þær megi
vinna verk sitt, eins og þær hafa lært það, og skellið
ekki allri skuldinni á þær, þó að smjörið ykkar seljist
illa, fyr en þið hafið gert það, sem í ykkar valdi stendur.
Hvítárvöllum, 4. jan. 1912.
H. Orönfeldt.