Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 183
BÚNAÐARRIT
179
óhægra er að gera torfhúsin þægileg umgöngu en önnur
hús, en ekki þarf að stafa verulegt óhagræði af því.
3. Húsin eiga að vera endingargóð. í þessu efni
er torfhúsunum hjá okkur hörmulega ábótavant. Öllum
er kunnugt, hve endingarlaus torfhúsin eru yflrleitt. Svo
algengt er endingarleysi þeirra, að fáir ímynda sér að í
því efni séu nokkrar verulegar undantekaingar. Torf-
húsin eru víða fallin eftir 12—20 ár og jafnvel fyr. En
það eru líka dæmi til hins, að torfhúsin hafa staðið í
100 ár og lengur.
Páll Briem getur þess í Lögfræðingi, að á Suður-
Frakklandi séu til sveita heil þorp af torfbyggingum,
skrautlegum á að sjá, sem geti staðið yfir 200 ár. —
Einnig segir hann að til skamms tima hafi verið til hér
á landi — á Norðurlandi — svo fornlegir skálar, að eng-
inn hafi vitað aldur þeirra, og hafi viðirnir i þeim verið
ófúnir, og hinn ágætasti viður, þegar þeir voru rifnir.
Hann getur um einn skála í Múlasýslum, sem hafi verið
þakinn með uxahúðum undir torfi. Er líklegt, að sá skáli
hafi verið orðinn æfa-gamall. Eg veit nokkur dæmi þess
hér á Vesturlandi, að torfhús geta enzt miklu lengur en
nú er vanalegt. Á Kollafjarðarnesi í Strandasýslu er til
allstór heyhlaða, sem bygð var fyrir meira en 70 árum.
Þegar eg sá hlöðu þessa síðast •— á næstl. sumri — leit
hún út eins og þegar eg sá hana fyrst fyrir meira en
50 árum. Sýndist mér að hlaðan hefði ekki hrörnað
neitt á þeim tíma. Eg þori að fullyrða, að viðirnir í
hlöðunni eru flestir ófúnir, og að hún muni endast enn-
þá marga tugi ára, ef hún verður ekki rifin. Fyrir nær-
felt 40 árum var bygður upp bærinn í Dagverðarnesi í
Dalasýslu, og rifin 80 ára gömul baðstofa, af því að hún
þótti of lítil. Sagði bóndinn, Magnús Einarsson, mér, að
viðirnir í baðstofunni hefðu verið svo ófúnir, að úr reisi-
fjölinni hefði mátt smíða mjólkurtrog. Um sama leyti
og Magnús sagði mér frá þessu kom eg í Hrappsey, og
sá þar gamla stofu, sem hafði verið prentst.ofa, þegar
12’