Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 184
180
BÚNAÐARRIT
prentsmiðjan var í Hrappsey. Hvort stofan var til
áður en prentverkið kom, veit eg ekki, en hafl hún verið
bygð handa því, þá hefir hún þó verið orðin 100 ára,
þegar eg sá hana. Stofan stóð í Hrappsey mörg ár eftir
þetta, og var sögð mjög svo ófúin, þegar hún var rifin.
Árið 1906 sá eg gömlu amtmannsstofuna á Viðivöllum
í Skagafirði, sem brann 2 árum síðar. Hún var orðin
128 ára gömul. Að öllu leyti var hún að sjá eins stæði-
leg og nýbygt hús, og það var að eins lagið á þiljunum
innan i henni og glugginn á þilgaflinum, sem sýndi að
hún var mjög gömul. Næstliðið sumar, 13. sept., skoð-
aði eg bæinn á Stóru Ökrum i Skagafirði. Það er sami
bærinn, sem Skúli fógeti Magnússon bygði á árunum
1730—1740. Bærinn hefir verið st.ór og reisulegur.
Veggir og þök allra húsanna úr torfi. Viðirnir eru
afar-sterklegir, og líta út fyrir að vera enn þá ófúnir að
mestu. Baðstofan hefir verið tekin ofan einhvern tíma
um eða fyrir miðja næstliðna öld og lækkuð. Er hún
nú gólfbaðstofa. Sagt var mér, að þiljurnar og aðrir
viðir, sem nú eru í baðstofunni, séu úr baðstofu þeirri,
sem Skúli bygði. Mér var sagt, að enginn vissi til þess,
að neitt annað af bænnm en baðstofan hefði verið hreyft
þessi 170—180 ár, sem liðin eru síðan hann var bygður.
Veggir allir eru auðsjáanlega gegnþurrir og harðir, og
ekki annað sýnilegt, en að þeir muni geta enzt önnur
180 ár enn þá. Fyrir nokkrum árum hafði verið gerður
gangur gegnum einn vegginn milli tveggja húsa, og stóð
sárið þar slétt og fast, líkt og ef grafið hefði verið gegn-
um móberg. Daginn áður en eg kom að Stóru Ökrum
hafði bærinn víða lekið í óvenjulega miklu illviðri, sem
gekk yfir Norðurland 11. og 12. sept., enda sagði mér
aldraður maður á Stóru Ökrum, að hann vissi ekki tii,
að neitt hefði verið gert við þökin um marga tugi ára.
í sömu ferðinni, sem eg sá bæinn á Stóru Ökrum, sá
eg nokkur torfhús á leið minni, sem sögð voru 60—80
ára gömul og voru eins stæðileg að sjá að öllu leyti,