Búnaðarrit - 01.01.1912, Side 195
BÚNAÐARRIT
191
húsinu, sem feyir viðina og það sem í húsinu er geymt,
en eitrar loftið fyrir menn og skepnur.
Eitt af því, sem styttir mjög aldur torfbygginganna,
er það, að einn veggur er hafður undir tveimur húsum.
Af því að ekki er búið svo vel um ræsið milli húsanna,
að vatn hlaupi ekki ofan í vegginn, þá fúnar hann,
klofnar og ónýtist á fáum árum. Þetta væri hægt að
fyrirbyggja með bárujárni.
Það er ekki síður áríðandi með torfhúsin en aðrar
byggingar, að allir viðir séu sterkir og af beztu tegund.
Viðirnir verða að geta enzt í minsta lagi eins lengi og
veggirnir. En til þess verða þeir að vera miklu betri en
viðarrusl það, sem nú er viða á boðstólum.
Um þökin er það að segja, að úr því að menn
þekkja nú alment bárujárnið, þá ættu allir að teljasjálf-
sagt, að verja þökin utan með því. Hér eftir ættu menn
ekki að telja torfhús vel bygð án þess, einkum í öllum
votviðraplássum. Er þá hægt að láta járnið ná út á
ytri brún veggjanna, til þess að verja vatninu að kom-
ast ofan i þá. Á þau torfhús, sem nú eru nýlega bygð,
ættu menn sem allra fyrst þeir geta að leggja bárujárn
utan á þakið, og láta járnið ná fram á ytri veggjabrúnir
á hliðunum og út undir ytri brún á göflunum. Með
þessu móti mundi mega tvöfalda eða þrefalda aldur þeirra
torfhúsa, sem nú eru til, og fyrirbyggja lekann, sem er
víða einn af leiðustu fylgifiskum torfhúsanna.
Það sem eg hefi nú sagt um byggingar er að eins
lauslegar athugasemdir »frá almennu sjónarmiði". Það
væri raunar ekki óþarft, að athuga húsaskipun, bygging-
ariag, veggjaefni, veggjahleðslu, þök á toifhúsum o. fl.,
sem hefir mikil áhrif á dýrleika, endingu og gæði hús-
anna, hvort sem það eru íbúðarhús, geymsluhús, pen-
ingshús eða heyhlöður. Eg ætla samt ekki að minnast
á neitt af þessu, bæði vegna þess, að þar þarf á svo
margt að líta, að það væri nóg efni í langa ritgerð, og
einkum af því, að mig vantar svo átakaniega þá þekk-