Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 196
192
BÚNAÐARRIT
ingu í ýmsum greinum, sem á þarf að halda til þess að
geta lagt nokkuð það til málanna, sem takandi væri
mark á. Ef rita ætti um torfbyggingar til gagns,
þyrftu uppdrættir að fylgja til skýringar. Eg skal ein-
ungis geta þess, að eg hygg að mjög væri misráðið, að
reyna til að steypa allar torfbyggingar á landinu í sama
mótinu. Veðráttufar er eitt af því, sem á að ráöa miklu
um fyrirkomulag húsanna, og veðráttan er svo afar-mis-
munandi a ýmsum stöðum. Byggingarefni í veggi og
þök er líka ólíkt, og fleira getur komið til greina, sem
sé einkennilegt fyrir viss héruð eða minni svæði, þegar
á að ræða um húsaskipun og byggingarlag. Sá sem
tekst á hendur að gefa leiðbeiningar um fyrirkomulag
torfbygginga, þyrfti helzt að hafa kynt sér staðháttu í
ýmsum héruðum og húsakynni þau, sem þar eru nú,
og hafa einnig nokkra reynslu sjálfur. —
Að endingu skal eg taka það fram, að menn verða
að gæta þess, þegar þeir byggja, að spara ekkert það,
sem nauðsynlegt er til að gera hverja byggingu sem er,
og úr hvaða efni sem hún er, sem bezta og varanleg-
asta, sem hún getur verið. Það hefir margur góður
maður brent sig á því, að draga sem mest úr kostnað-
inum, þegar hann hefir bygt, og gert bygginguna með
því illa til íbúðar eða annara nota og endingarlitla. Ef
menn ráðast i mikinn byggingakostnað með litlum efn-
um eða lánsfé, þá er svo mikil freisting til að khpa um
of af kostnaðinum, að margir standast hana ekki. I
öllum störfum er vandvirknin nauðsynleg, en einkanlega
þar sem mikill kostnaður er lagður í það, sem unnið er.
Húsabyggingar eru ávalt dýrar — kosta mikla vinnu og
mikla peninga — af hvaða efni sem húsin eru gerð, ef
nokkur mynd á að vera á þeim. Það er því áríð-
andi, að þessi kostnaður geti orðið að sem mestum og
varanlegustum notum. Það getur komið fyrir, að menn
geri eitt hús ilt til íbúðar og endingarlítið bara með því,