Búnaðarrit - 01.01.1912, Side 215
BÚNAÐARRIT
211
á við. Herfið sker því hnausana sundur í X. Engin
stöng er á þessu herfi, og er það kostur mikill, enda er
það mun iéttara í drætti en venjuleg, jafnstór diskaherfi,
miðað við hversu vel það vinnur.
Ofan á herfinu er sæti. Hvílir það á tveimurjárn-
bogum, sem eru eins og sleðameiðar í iaginu. Enda er
ætlast til þess, að velta herfinu við og draga það á
þessum járnmeiðum, þegar flytja á stutta leið. Annars
er auðvelt að skrúfa það í sundur og flytja á hestum
bæja á milli. Telja má það kost, að herfi þetta veltir
jörðinni ekki saman í hryggi, eins og diskaherfið gerir,
heldur jafnar það jörðina miklu frekar undir sig.
Af þessu herfi eru til 3 tegundir. Tel eg miðstærð-
ina hentugasta fyrir okkur. A henni eru 28 spaðar, og
vegur herfið 150 kg. Þetta heríi draga 2 hestar vel,
þar sem ekki er halli, þó á só setið. En betra þykir
mér og tel sjálfsagt, að beita þrem hestum fyrir, og er
það þá léttur dráttur.
Þetta heríi er aðallega ætiað á mýrarjörð og seigan
jarðveg, og þykir nú vera óviðjafnanlegt. En auðvitað
vinnur það líka fljótt og vel myldinn jarðveg. Þó þykir
mér það galli á þessu herfi, að það þolir ekki eins vel
grjót og klakaherfingu, þá er grunt er á klaka, eins og
góð diskaherfi. Er ekki eins sterkt. Þó álít eg það
komi ekki að sök, só því ekki þrælbeitt á mjög grýtta
jörð — jarðfast grjót — og þar sem grunt er á klaka.
í vor hefi eg notað herfið mikið og líkað ágætlega.
Og meðmæli eru það nokkur, að tveir lærisveinar mínir
pöntuðu það strax. Tóku það hykiaust fram yfir diska-
herfið. Herfi þetta kostar í innkaupi kr. 115.00. Séu
4 keypt í einu eða fleiri, fæst afsláttur, sennilega ofan
i 100 kr. Búnaðarfélag ísiands hefir beðið um eitt, og
verður það til sýnis í Gróðrarstöðinni í Reykjavík, þar
sem önnur þörf og góð verkfæri eru fyrir.
Annað herfi sá eg á Jótlandi. Nefndu þeir það hníf-
herfi. Hafði karl með tveimur uxum herfað eðaréttara
14*