Búnaðarrit - 01.01.1912, Side 222
218
BÚNAÐARRIT
eg von um, að ýmsir búendur hér nálægt byrji á þess-
ari heyverkun næsta sumar.
1910. Hinn 10. sept. 1910 voru látnir í súrheysgryfju
þá, er iýst var í f. á. skýrslu, 89 votabandshestar af
grasþurru valllendisheyi, og farið að öllu sem áður, þar
eð sú aðferð hafði reynst vel. Hinn 13. s. m. voru
látnir í aðra súrheysgryfju, er grafln var daginn áður,
80 votabandshestar, 60 h. af fergini og stör og 20 h. af
valllendisheyi. Er þessi gryfja um 980 ten.fet innan-
máls. Þetta hey var fergt með nýstungnum kökkum,
þvi að grjót var ekki fyrir hendi. Síðan var mokað þar
yfir mold all-mikiiii og svo gert yfir með þakjárni. Þessi
gryfja var ekki hlaðin innan í þetta sinn, þar eð ekki
var tími til þess, því að heyið lá undir skemdum af
óþurki.
Úr göinlu gryfjunni var farið að gefa 27. okt. eða
eftir 47 daga. Var þá heyið töluvert volgt, um 20° hiti,
en með góðri súrheyslykt og vel verkað. Rekjur voru
nokkru minni en fyrra árið, því að látið hafði verið lag
af gömlu heyi þurru bæði ofan á og undir. Hitann í
súrheysgryfjunum gat eg ekki mælt meðan heyið var að
verkast, þvi að mig vantaði mæli. — Ekki veit eg nema
einn nágranna minn hafa gert súrhey í þetta sinn, og
heppnaðist honum það vel. Hefi eg þó mörgum bændum
ráðlagt það og skýrt þeim frá aðferðinni og þeim mikla
mismun, að gefa hey, sem er eins og það fellur af iján-
um, eða margra vikna hrakning, sem í raun og veru er
engri skepnu gefandi.
1911, s/i2. Súrhey var gert hór eins og tvö fyrirfar-
andi ár að tilhlutun Búnaðarfélags íslands. I súrheys-
gryfjuna var heyið sett 9. sept. s.l., sömu gryfju og áður
hefir verið lýst, 80 votabandshestar, er samsvarar um
40 hestum af þurru heyi, og var það eintómt valllendis-
hey nú, nýslegið. Byrjað að gefa úr gryfjunni 1. des-
ember, og reynist heyið ágætlega vel, litlar rekjur og
heyið óvanalega létt upptaks, er mun koma af því, að