Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 225
BÚNAÐARRIT
221
fást. Eg hefl gert mér far um aö sýna mönnum heyið
í vetur, bæði þeim sem hór hafa komið, og svo haft
sýnishorn af því með mér á fundi, og hefir mönnum litist.
mjög vel á það.
1911, 10/s. í sumar sem leið var hér tíð mjög hag-
stæð fram til ágústmánaðarloka. Yildi eg þá ekki fást
við súrheysgerð, því að eg tel ekki ráðlegt að búa til
súrhey, ef kostur er á að þurka heyið nýslegið. Þegar
óþurkarnir byrjuðu i september, átti eg ekki eftir óslegið
af engjuin nema það, sem svo er fjærri bænurn, að ó-
kleift má heita að flytja þaðan blautt hey heirn til súr-
heysgerðar. Til þess þó að geta gert súrhey úr ein-
hverju af heyinu, lét eg gera gryfju við fjárhús, náiægt.
því sem heyið var, og flutti í hana um 100 hesta af
nýslegnu mýrarheyi. í farg á það hafði eg nýja mýrar-
kekki, því að grjót, var ekki nærri. Iley þetta er í á-
gætri verkun. Gef eg það ám að 1/*—V8 m°ti þurru
heyi. — Sex bændur komu hingað til þess að fá leiðbein-
ingar í súrheysverkun.
1912, 18/i. í sumar er leið tók eg enn 100 hesta af
heyi til votheysverkunar. Var það síðslegið mýrarhey.
Gryfjan, sem það var látið í, er hlaðin innan úr mýrar-
kökkum, og er járnþak yflr. Heyið var látið niður ný-
slegið og blautt. Var hestur hafður í gryfjunni, til þess
að troða niður heyið. Tveim dögum eftir að heyið var
látið niður var liitinn í því orðinn 65° ofan til, en minni
eftir því sem neðar dró. Var þá farg látið á heyið, 4
lög af ný-stungnum mýrarkökkum, um 1 m. á þykt.
Hey þetta er í ágælri verkun, rauðbrúnt á lit. Eg
gef það ám með þurru heyi, x/3 af votheyi móti ‘2/s af
þurru heyi, og reynist þg.ð gott til fóðurs og holt fyrir
skepnurnar.
Frá Sigurði sýslum. Ólafssyni í Kaldaðarnesi í Árness.
1911, s/8. Gryfjan undir súrheyið var tekin í hól
austan undir heyhlöðunni. Veggir hennar voru hlaðnir