Búnaðarrit - 01.01.1912, Side 226
222
BÚNAÐARRIT
úr blautum mýrarkökkum, með öilitlum fláa, vel sléttir
innan, hornin bogadregin. Stærð gryfjunnar: lengd inn-
an veggja 20', vídd 7', dýpt 6'. — 5. sept. í fyrra sum-
ar var slegið og jafnóðum flutt heim í gryfjuna valllendi,
nærri eltingarlaust. Dálítið rigndi við og við þann dag,
og var grasið því rennblautt, er það var látið niður.
Sáturnar voru tættar rækilega sundur, og grasinu dreift
vel og vandlega um gröfina, og troðið af mönnum svo
sem unt var, einkum með veggjunum, unz gröfin var
orðin sléttfull. Þá var hestur teymdur út á heyið og
um það fram og aftur, en lítið sem ekkert lækkaði í
gröfinni við það. Haldið var áfram þann dag að bæta
ofan á, unz kúfurinn upp af gröfinni var orðinn 3V2 alin
á hæð, þakmyndaður að ofan, svo að síður gengi í hann
vatn, ef á hann rigndi óvarinn. Kúfurinn var lítið eitt
stærri um sig en gröfin, með vel sléttum, lóðbeinum
hliðum. í heyinu hitnaði mjög á 2. og 3. degi, en mæli
vantaði þá til að mæla með hitann. 7. sept. rigndi mjög
ákaft aflan daginn, og hefir þá vafalaust gengið allmikið
vatn i heyið, einkum með veggjunum, enda hafði heyið
sigið frá þeim á stöku stað, er i því hitnaði, og þess
eigi gætt sem skyldi, að láta halla frá þeim nægilega. —
9. sept. var mest alt heyið sigið ofan í gröfina. Þávar
bætt ofan á 1V2 al. háum kúf og um leið troðið vand-
lega niður með veggjunum, þar sem heyið hafði fjar-
lægst þá. Að því búnu var heyið þakið blautu torfi. —
12. sept. var orðið snarpheitt i vlðbótinni, og heyið sigið
um alin. Yar þá torfið tekið af, og enn bætt ofan á,
unz kúfurinn var 2 álna hár, og tyrft yfir aftur. Næsta
dag að kveldi var borið á toríið grjótfarg (hraungrýtislag
30 þumi. þykt), nál. 250 ÍE á hvert ferfet. Eftir það
seig heyið á fám dögum niður fyrir grafarbarmana iítið
eitt, en ekkert úr því. Hálfum mánuði síðar var stórri
lön af þurru heyi hlaðið upp af gröfinni til þess að verja
súrheyið skemdum af vatnsrensli. — 29. nóvember var
tekið á súrheyinu þannig, að farginu var rutt af nál. 2