Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 230
226
BÚNAÐARRIT
þá söinu sem að undanförnu, með þeirri eiDni nýjung,
að nu mældi eg hitann, frá því hann fyrst myndaðist,
á öðrum degi eftir að eg lét í gröflna, og til þess meir
en mánuði eftir að búið var að láta fóðrið í hana, og
nú lét eg ekki alt grjót á í einu.
Grasið var slegið fyrri hluta septembermánaðar í
votviðri og rakað í dríli þegar af blés. Svo var því ekið
heim að gröflnni og látið í hana 14.—23. s. m. Þá var
flesta dagana þurt veðnr og suma góður blástur, svo að
það, sem síðast var tekið heim, var orðið mikið blásið
í drílunum. Því var dreift vel og svo troðið í gröflna,
og þegar hún var orðin kúffull, var hestur notaður til
að troða í hana, með því að teyma hann fram og aftur
um hana, meðan stakkurinn upp af gröfinni var ekki
orðinn of hár til þess, að koma hesti upp í hann. Hit,-
inn var á 2. degi orðinn 35° og meðan verið var að
iáta niður, varð hann aldrei meiri en 43° að morgni
hvers dags, áður en farið var að bæta ofan á, 2—3 fet
undir yflrborðinu. Á 2. degi eftir að búið var að láta
alt niður, tyrfa og láta nokkuð af grjóti á, var hitinn
orðinn 55°. Þá var meira grjót látið á, og þá var
hitinn á næsta degi 60°, og á 4. degi var hann orðinn
64°. Hærra komst hann ekki. Svo stóð það meira en
viku. Þá var enn bætt grjóti á, til þess er það var
orðið svo mikið, sem eg er vanur að hafa það, en hefi
áður látið það á alt i einu. Þá féll hitinn niður í 45°,
og frá því til október var hann 40°—45° um 2' undir
yfirborðinu, nokkuð minni, um 35°, 1' neðar og líka 1'
ofar; aðgætt hvern dag.
Um miðjan október var farið að taka af súrheyinu
handa kúnum, og hefir siðan verið gefið af því með,
hvern dag, og fyrst í þ. m. (desember) var byrjað að
gefa lömbum af því með útheyi. Það reynist nú, sem
undanfarin ár, mikið ijúffengt og gott fóður.
Eg sendi Búnaðarfélaginu ofurlítinn lagð af súr-
heyinu, til þess að það geti látið rannsaka efna-innihaid