Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 233
BÚNAÐARRIT
229
á, til þess er hitinn í þvi varð 60° áður en fargið kom.
Næsta dag eftir að fyrri hluti (nálægt heimingur) fargs-
ins var látinn á, féll hitinn olan til í fóðrinu niður í
56°, en neðan til í þvi niður í 60°. Svo lét eg bíða
7 daga, sem hitinn hélzt mjög líkur. í*á var fargið full-
látið á, og þá stuttu eftir féll hitinn enn niður í 34°,
og við það hólzt hann nokkra daga; úr því hætti eg að
mæla hann.
í lok októbermánaðar var farið að taka á því og
gefa kúnum úr þeim enda grafarinnar, sem dyr eru á.
En þar er það ekki eins gott og það hefir verið að
undanförnu, einkum efst, sem eg álít veia bæði af því,
að það er við dyrnar, og svo þvi, að stakkur var nú
hlaðinn í hæsta lagi upp af gröflnni, og ennfremur af
því, að það var nú mestalt í blautasta lagi látið í gröf-
ina. En það fer batnandi eftir því, sem niður í
það kemur, og eg hygg að það batni, þegar lengra
kemur inn.
Nokkrir aðrir hér í sveitinni gerðu súrhey í ár,
auk Guðmundar á Möðruvöllum. Þeir voru: Andrés
Ólafsson í Bæ, Halldór Ólafsson í Hvammi, Steinn og
Þorkell Guðmundssynir á Valdastöðum. Á þessum stöð-
um hefir súrhey áður verið gert stöku sinnum. En
auk þeirra gera það nú nokkrir, sem ekki hafa gert það
fyr, svo sem Benedikt Einarsson og Sveinbjörn Guð-
mundsson, bændur á Hurðarbaki, Gestur Bjarnason í
Miðdalskoti, Guðmundur Hannesson í Miðdal og Guð-
laugur Jakobsson í Sogni. Tveir þeir fyrsttöldu hafa séð
það gert á Vaidastöðum, þegar þeir voru þar, og sá
þriðji sá það mörg ár gert hér, þegar hann var vinnu-
maður hjá mér. Þeir siðasttöldu tveir hafa ekkert við
það fengist, svo eg viti til, fyrri en nú.
Ekki veit eg hvort þeir eru farnir að skoða það eða
reyna til gjafar; tel líklegt, að það reynist vel, nema ef
það hefir hjá sumum þeirra verið oflítið til þess að geta