Búnaðarrit - 01.01.1912, Side 235
BÚNAÐARRIT
231
Frá Halldóri skólastjóra Vilhjálmssyni á Hvanneyri i B.fj.s.
1910, 14/s. Mánudaginn 9. ágúst í sumar sem leið
var byrjað að slá upp aftur túnið á Hvanneyri, og var
lokið við það þann 12. s.m. Sökum þess að litlir þurkar
voru um það leyti, en oft allmikil rigning, var hánni
rakað blautri saman í smá föng, er síðar átti að dreifa,
ef þurkur kæmi.
Óþurkurinn hélzt, og það sem fyrst var slegið var
byrjað að skemmast. Þegar svo mánudagurinn sá 16.
byrjaði með þoku og rigningu, lét eg byrja að aka heyi
í súrheystóftina, er eg lét gera sumarið 1907.
Tóftin er steinsteypt, 10X12 álnir. Efri hliðvegg-
urinn er 6 álna hár, en hinn neðri 5x/2; veggja-
þyktin er 13" að neðan, en 10" að ofan. Dyr eru á
neðri hliðinni, svo víðar, að hægt er að aka vagni um
þær. Yfir tóftinni er járnþak. Járnplöturnar eru festar
þannig, að rónaglar ganga upp í gegnum þverbita og
langbönd, er hvíla undir og yfir samskeytum járnplatn-
anna. Gildir rónaglar (akkeri), er ná 18" niður í steyp-
una, ganga upp í gegnum vegglægjur, bitahöfuð, járn-
plötur og langbönd. Enginn nagli er notaður, alt er
laust. Þegar rærnar eru skrúfaðar af, má því lyfta af
efri langböndunum, járnplötunum, er hafa áframhaldandi
númer, neðri langböndum og þverbitum, svo að ekki
hvílir eftir nema vegglægjurnar. Tóftin stendur í halla,
og er fylt upp að baki hennar, svo að ekki er nema
ein alin upp á brún hennar af jafnsléttu.
Tóftin með þaki og öllu kostar rétt um 1000 kr.
Til þess að hlífa hánni, lét eg aka fyrst nokkru af
útheyi í tóftina, dreifði því jafnt yfir botninn og með-
fram veggjunum. Síðan var hánni ekið heim smátt og
smátt, eftir ástæðum, til þess 20. Hún var öll mjög
blaut af regnvatni, og það, sem lengst hafði staðið í föng-
um, var farið dálítið að skemmast. Jafnframt hánni lét
eg aka heim óvönduðu útheyi. Yar það mest „hrannir".