Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 248
244
BÚNAÐARRIT
Stóð Ingimundur Guðmundssou fyrir þeim, en eftir lát
hans Páll kennari Zóphóniasson. Hefir hann gert bráða-
birgðaskýrslu um þær, sem kemur í Búnaðarritinu. En
aðalskýrslu þykir rétt að draga að birta, þar til er frek-
ari tilraunir eru gerðar.
Til að gefa út Fóður- og mjólkurskýrslur eftir Ingi-
mund Guðmundsson var vaiið rúmum 600 kr.
Námsslceiðin ýmsu, sem Búnaðarfélagið kostar, voru
óvenjulega vel sótt árið sem leið. Garðyrkjunemar i
gróðrarstöðinni voru 11; h.öfðu margfalt fleiri sótt en
hægt var að veita viðtöku. Við plægingarkensluna í
Einarsnesi voru 6 nemendur. Námsskeið fyrir eftirlits-
menn nautgriparæktarfélaga sóttu 11. Magnús dýralæknir
Einarsson, sem veitt hafði þar nokkra tilsögn undanfarin ár,
sagði nú til um fleira, þar á meðal bólusetningu sauðfjár við
bráðapest. Mjólkurskólanemendurnir á Hvítárvöllum voru
8. Slátrunarnemar hjá Sláturfélagi Suðurlands 9. Hálfu
fleiri höfðu sótt, en ómögulegt að taka fleiri. Um öll
þessi námsskeið er nánari skýrsla í Búnaðairitinu.
Búnaðarnámsskeið, sem félagið hefir kostað eða
styrkt, voru áiið sem leið í Þjórsártúni, i Stykkishólmi, á
Eiðum og 2 á Vestfjörðum. Auk þess aðstoðuðu ráðu-
nautar þess við bændanámsskeið á Hvanneyri og náms-
skeið í Húnavatnssýslu. Enn fremur styrkti það Hóla-
mannafélag til fyrirlestrahalds nyrðra og Guðmund Hjalta-
soq syðra. Um fyrirlestra Jóns Þorbergssonar er áður
getið. Á þessu ári hefir íélagið haldið fjölsótt náms-
skeið í Hjarðarholti í Dölum og styrkt námsskeið á Eið-
um, auk aðstoðar við bændanámsskeið á Hvanneyri.
Hússtjórnarkensla og matreiðslu var i fyrra vetur i
Borgarfjarðar, Mýra, Dala og Isafjarðar sýslum. í vetur
var sú kensla boðin Snæfellsness, Kjósar, Gullbringu,
Stranda og Húnavatns sýslum. Snæfellingar og Stranda-
menn þáðu ekki, en í þeirra stað komu Borgarfjarðar og ísa-
fjarðar sýslur, sem óskað höfðu kenslunnar. Næsta vetur
hefir kenslan verið boðin og þegin i Skagafjarðar og Eyja-