Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 249
BÚNAÐARRIT
245
fjarðar sýslum, ef kenslukona fæst. Smjörbúasamband
Suðurlands hefir verið spurt um, hvort það óski þeirrar
kenslu næsta vetur á sínu svæði, en svar er ókomið.
Utanfararstyrk til verklegs búnaðarnáms hafa 11
menn fengið árið sem leið, þar af 2 til garðyrkjunáms
og 1 til sauðfjárræktarnáms á Bretlandi. 2 stúlkur fengu
styrk til hússtjórnarnáms í Danmörku og Noregi, en sá
Styrkur var greiddur af Liebesgjöf. Halldór skólastjóri
Vilhjálmsson fékk 500 kr. styrk til utanfarar. Það sem
Búnaðarfólagið fól honum sérst.aklega var að litast um
eftir verkfærum, sem vera kynni ástæða til að útvega
hingað. í næsta hefti Búnaðarritsins kemur grein frá
honum um ýmislegt, sem hann athugaði í ferðinni. Eink-
um var hann beðinn að útvega betri ijái en þá, sem
við höfum nú. Fékk hann til sýnis Ijái nokkra frá verk-
smiðju einni sænskri, sem honum þótti líklegust að
snúa sér til. Voru þeir reyndir hér af ýmsum, en ýmis-
legt þótti við þá að athuga. Einn þeirra, sem reyndi
þá, hafði þó gott eitt um þá að segja. Þóttu honum
ljáirnir ekki standa að baki brezku Ijáunum, eins og
þeir voru, þegar þeir fluttust hingað fyrst. Nú hefir
verksmiðjunni verið skýrt frá aðfinslunum, en svarið er
ókomið.
Til Idnsýningarinnar í Reykjavík voru veittar 200
kr. til þess að sýna þar búnaðaráhöld.
Til tiirauna með torfbyggmg var Guðmundi bónda
Bárðarsyni á Kjörseyri veittur 200 kr. styrkur.
Tilhögun sú með búnaðarsamböndin, sem búnaðar-
þingið síðasta ályktaði að reyna skyldi að koma á, er
nú komín á norðanlands og austan að mestu leyti.
Um Suðurland og Vesturiand enn ekki frétt alstaðar.
Dalasýsla og Snæfellsnessýsla hafa enn verið fyrir utan
sambönd. Sigurður búfræðingur Sigurðsson ferðaðist í
vetur um Snæfellsnessýslu í þeim tilgangi, að glæða
áhuga fyrir málinu, og sama var gert i Dalasýslu 1 sam-
bandi við búnaðarnámsskeiðið. Var tilætlunin, að þessar