Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 252
248
BTJNAÐARRIT
í Rangárvallasýslu austanverðri voru fyrstu 21/*
mánuðir ársins harðari og snjóameiri en bæði austar og
vestar.
Vorið. Bliðviðri og stillur hér framan af vorinu
sunnanlands, en þegar kom fram yflr krossmessu gerði
norðankulda, og héldust þeir úr því alt af öðru hvoru
fram á slátt. í uppsveitum komu alloft næturfrost í
júlímánuði.
I Dölum var fremur góð tíð i mai, sunnanátt og
vætur. í júní var hægviðrasamt en kalt.
Af Vestfjörðum er skrifað, að eftir því sem iiðið
hafl á vorið, hafi kólnað meira, og júní hafi sérstaklega
verið frámunalega kaldur.
A Norðurlandi köld og þurr veðrátta. Greri seint.
Næturfrost við og við til fardaga.
Á Austfjörðum gerði verstu tið um miðjan apríl, og
hélzt hún mánuðinn út. Fylti þar alla flrði með hafís,
en hann fór fyrstu dagana af mai. Mátti svo heita góð
tíð fram í miðjan júni; gerði þá fádæma kulda, svo jörð
fór lítið fram. Halísinn kom inn á Hornfjörð 27. april,
fór aftur um miðjan mai.
í Vestur-Skaftafellssýslu var fremur köld og þyrk-
ingsleg tíð; spratt bæði seint og illa, einkum valllendi.
í Rangárvallasýslu var kuldinn sá sami, en úrkomurnar
meiri en austar.
S u m a r i ð var kalt sunnanlands, að undanteknum
ágústmánuði, sem var hlýr. Jörð spratt seint vegna
kuldanna. Sláttur byrjaði í síðara lagi. Varð því töðu-
brestur allmikiil, en nýting á töðunni í góðu lagi. Út-
hey urðu í meðallagi í Árness og Rangárvalla sýsluin.
Tiðin bætti þar upp grasbrestinn. Um Borgarfjörð varð
heyfengur í lakara meðallagi sökum grasbrests og í upp-
sveitunum vegna vöntunar á þurki. Með höfuðdegi brá
til óþurka, er héldust út sláttinn,
í Dölum var kalt framan af sumrinu; oft til fjalla
alsnjóa, en niðri í bygð bleytukafald og kraparegn stund-