Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 253
BÚNAÐARRIT
249
um á daginn. Tíð fremur köld í ágúst, en þurr, og
næturfrost nokkuð oft. Óþurkar og kuldar í september.
Sláttur byrjaði alment 12. júlí, og varð heyfengur með
minna móti hjá mörgum vegna sneggjunnar. Nýting
dágóð á töðum, fremur slæm á útheyi. Um 16. sept.
var hætt heyskap.
Á Vestfjörðum var júlí frámunalega kaldur. Ágúst
og september miklu hlýrri. Grasspretta í minna lagi,
einkum á túnum og víðast á engjum. Munaði sum-
staðar á túnum alt að því helming af töðu írá því, sem
bezt heflr verið.
í Eyjafirði kom mikill hiti seinni hluta júní, eink-
um 19.—26. júní; voru þá 25—29° C. á daginn í skugga,
en 18—22° á nóttum. Aldrei dropi úr lofti þá um all-
langan tíma. Grasvöxtur varð ekki meiri en í meðai-
lagi og sumstaðar siður, t. d. á þurkuðum mýrum og
hólatúnum. September kaldur og votviðrasamur.
Á Austfjörðum var tíðin köld og þurrviðrasöm framan
af sumrinu. í byrjun júlí hlýnaði, og varð þá óvenju
heitt. Eftir miðjan júlí urðu þurkarnir stopulir. Fremur
kalt í ágúst, en allgóð heyskapartíð. September kaldur
og íosasamur. Gras spratt seint eins og annarstaðar,
en varð nær því í meðallagi. Heyskapur hætti fyr en
menn höfðu ætlað, vegna óþurka.
í Skaftafellssýslum var víðast byrjað að slá í 13.
viku sumars og sumstaðar ekki fyr en í 14. vikunni;
voru tún þá alment i sneggsta lagi, en með hundadög-
um brá til óþurka og hlýinda; spruttu þá engi, og varð
gras sumstaðar í meðallagi. Öndvegistíð seinni hluta
sláttar. Varð því heyskapur víðast i góðu meðallagi,
nema þar sem grasmaðkurinn hafði gert mest spjöilin,
en þau gerði hann einkum í Fijótshverfi. Er það 6. árið
í röð, sem hann herjar sveitirnar meðfram fjöllunum,
milli Skeiðarársands og Mýrdalssands. Hann var nú með
langvægasta móti.
Haustið og veturinn ti 1 nýjárs. Haust-