Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 256
252
BÚNAÐARRIT
uppskeia í meðallagi, en þó lakari i sandbornustu görð-
um. Uppskera því minni en árið áður. Rófur spruttu
allvel.
I uppsveitum Borgarfjarðar og i Árnessýslu var upp-
skera úr görðum mjög misjöfn, en yfirleitt fremur rýr.
í Dalasýslu var sett í garða í iok maimánaðar. Upp-
skera með rýrara móti, þó lakari á rófum en kartöflum.
Á Yestfjörðum betri uppskera en á horfðist í fyrstu,
en varð þó víða í minna lagi.
I Eyjafirði varð uppskera alt að því i meðallagi eða
tæpiega það. Talið er að hinir dæmafáu þurkar í júní
og framan af júlí hafi dregið úr vextinum.
Á Fljótsdalshéraði spratt með lakara móti,i görðum.
Kartöflugras féll algerlega i byrjun september.
Skrifað er úr Rangárvallasýslu, að uppskera úr görð-
um hafi verið í góðu meðaliagi.
Aflabrögð.
I veiðistöðunum í Árnessýslu, Stokkseyri, Eyrar-
bakka og Þorlákshöfn, var fremur rýr afli, og enginn í
Selvogi þetta ár, en í suðurveiðistöðum Faxafióa var
góður afli á opna bát.a, einkum á vetrarvertíðinni. Á
Akranesi var aflalítið alt árið, að eins nokkur lúðuveiði
og hrognkelsaveiði allgóð.
Á Eyjafirði var lítill fiskafli, en síldveiði með af-
brigðum mikil og góð.
Við Norðurland aflaðist um sumarið 124499 tunnur
af síld, er söltuð var; af þvi öfluðu íslendingar rúman ^je.
Á Siglufirði er búið að setja upp vélar, sem vinna
eiga „gúanó“ úr síld. Var talsvert unnið að því um
sumarið. Það er nytsemdar-fyrirtæki og stendur til bóta.
Á Austfjörðum var tregur afli alt sumarið, batnaði
nokkuð er fram á leið. Töluverður fiskur um haustið,
svo aflabrögð manna urðu yfirleitt fyllilega í meðallagi. —
Fiskafli góður í Lóni og Nesjum i marz og apríl, betri