Búnaðarrit - 01.01.1912, Side 266
462
BÚNAÐARRIT
að setja ekki meiri fénað á, en hann er viss um að hafa
nóg hey fyrir, þó að vetur verði í harðasta lagi — verði
t. d. 24 vikna innistaða fyrir sauðfé. Nú veiður vetur-
inu fremur góður. Gjafatimi verður sem svarar 17—18
vikna innistöðu. Jón fyrnir nú XA part af því heyi, sem
hann ætlaði sauðfé og hrossum.
Næsta haust setur Jón enn á, og setur að eins á
nýju heyin, og býst við vondum vetri. Yeturinn verður
aftur góður, og Jón fyrnir aftur V* partaf nýju heyjun-
um, og þar að auki fyrnir hann af nýjum heyjum sem
svarar fornu heyjunum, sem hann hefir eytt. Á hann
því fornt hey, sem svarar hálfum sumarheyjunum hjá
sauðfé og hrossum. Þriðja haustið fer Jón eins að.
Hann setur ekki á fyrningarnar. og setur jafn-gætilega og
áður á nýju heyin. Enn þá fær Jón góðan vetur, svo
að næsta vor á hann fyrningar sem svarar 3/* pörtum
af sumarheyjunum. Jón heyjar um sumarið eins og
hann er vanur, og veturinn verður líka svo góður, að
nú duga fornu heyin, og nýju heyin öll standa ósnert
um vorið. Hér er að eins átt við hey hjá sauðfó og
hrossum.
Nú er komið laglegt forðabúr, og með þeim hugs-
unarhætti, sem menn hafa hingað til haft við heyásetn-
ing, mundu margir kalla þetta ráðleysi hjá Jóni. En
Jón þykist þess fullviss, að þessi hey geti öll unnist upp,
þegar minst varir. Og við skulum sjá, hvernig gengur
hjá Jóni, ef nú skyldi koma ein af þeim harðinda-
skorpum, sem iðulega hafa heimsótt þetta iand, en þó i
minna lagi.
Næsta sumar verður gott meðalsumar, og Jón heyjar
eins og hann er vanur, og setur á um haustið með sama
móti og áður. En nú skiftir um tíðaríar. Sauðfé og
hross koma á innistöðugjöf um veturnætur, og hagi
kemur ekki upp fyr en 14. maí. Hefir þá sauðfé og
hross staðið inni í 29 vikur. Hafís kom í janúar, og
liggur hann franr á höfuðdag. Yorið varð þvi kalt og