Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 286
Fóðurtilraun
á Hvanneyri veturinn 1912.
Bráðabirgðaskýrsla.
Tilraun þessi var gerð dagana 12. jan. til 4. apr.,
að þeim báðum meðtöldum.
Ingimundur sál. Guðmundsson byrjaði á henni og
hugsaði fyrirkomulag hennar. Hann annaðist líka fram-
kvæmd hennar fyrir hönd Búnaðarfélags íslands til 12/s, er
hann fór upp í Lundar-Reykjadal til að halda fyrirlestur. í
þeirri ferð drukknaði hann í ármótum Grímsár og Hvít-
ár u/3, og tók eg undirritaður, sem gegndi störfum hans
viðvíkjandi tilraununum, meðan hann var í ferðinni, við
framkvæmd þeirra og umsjón fyrir hönd Búnaðarfé-
lagsins.
Hér birtist þá fyrir sjónum almennings bráðabirgða-
skýrsla um tilraunina. Eg vænti þess, að stjórn Bún-
aðarfélagsins sjái sér fært, að endurtaka tilraun þessa, og
er þá sjálfsagt að birta árangur tilraunanna í einu lagi.
Á einni einstakri tilraun má aldrei byggja, fyrri
en fleiri samhljóða tilraunir hafa staðfest þá niðurstöðu,
er menn hafa komist að. Því er nauðsynlegt, að fá
fleiri tilraunir í þessa átt, og birtist þá að sjálfsögðu
árangur þeirra allra í heild.
Úr fjósinu á Hvanneyri, sem í eru um 40 mjólk-
andi kýr, voru valdar 18, og þeim skift í 3 flokka. Voru
því 6 kýr í hverjum flokki. Þessar 6 kýr voru valdar
þannig, að meðalkýr hvers flokks yrði sem allra næst
því eins, bæði hvað aldur, þyngd, nytliœð, feitimagn og
burðarthna snerti.
Öllum þessum kúm var síðan geflð 10 kg. af heyi
á dag. Voru það sín 5 kg. af hvoru um sig, töðu og
útheyi. Efna-innihaid töðunnar og útheysins var rann-