Búnaðarrit - 01.01.1912, Síða 289
BÚNAÐARRIT
235
íjöldinn getur aukist, án þess að heyaílinn þurfi að
aukast.
Það sem meðalkýrnar fengu til viðbótar 10 kíló-
grömmunum, sem áður eru nefnd, var meðan á sjálfu
tilraunaskeiðinu stóð:
Heykýrnar 2,4 kg. hey,
Votheyskýrnar 10,0 kg. vothey,
0,1 kg. fóðurbætir,
Kraftfóðurskýrnar 1,1 kg. fóðurbætir.
Eftir þessu borga þá votheyskýrnar að meðaltali:
10,0 kg. vothey og
0,1 kg. fóðurbæti,
með því sem nemur verði
2,4 kg. heys og
0,62 kg. mjólkur.
Sé heykílógrammið virt á 5 aura og mjólkurkíló-
grammið á 10 aura, þá fæst fyrir fóðurviðbót votheys-
kúnna 18,2 aurar.
Að sama skapi borga fóðurbætiskýrnar 1,1 kg. fóður-
bæti með því er nemur verði
2,4 kg. heys og
0,72 kg. mjólkur,
og er það með sömu virðingu og áður 19,2 aurar.
Þetta er þá í stórum dráttum árangur tilraunanna,
og tel eg ugglaust, að hann verði birtur nákvæmlegar,
þegar fleiri samhljóða tilraunir eru fengnar.
Til bráðabirgða má því ráða mönnum til, að gefa
kúm fóður, sem hefir sem næst því það magn af meltan-
legum næringarefnum, sem nefnt er hér að framan, eða:
0,06 kg. meltanlega eggjahvítu og
0,8 sterkjueiningar
fyrir hver 100 kg. af lifandi þunga gripsins, en svo
þar að auki:
0,05 kg. meltanlega eggjahvítu og
0,2 sterkjueiningar