Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 294
290
BÚNAÐARRIT
merkir 0, með því að halla járninu á lárétta arm vink-
ilsins og brenna með röðinni á honum.
Hér er miðað við að stafirnir standi á láréttu strikir
en á horninu liggur strikið í boga eftir því endilöngu,
og snýr því það, sem hér er talið lóðrétt, ávalt ná-
kvæmlega þvert yfir hornið.
Brennimarkið er bezt að búa til úr ferköntuðu járni,
1 cm. á kant, og mynda þá tveir kantar þess vinkilinn.
Sé járnið grennra verður að þrýsta því saman, svo að vinkil-
armarnir geti orðið 1 cm. (——) á lengd á ytri brún.
Þegar búa skal til vinkiiinn, er járnið sett í skrúf-
stykki þannig, að röðin gegnt vinkilhorninu, sem á að
verða, snúi beint upp, og endinn, sem vinkillinn skal
koma á, er látinn hallast á ská upp á við og látinn
standa 4 cm. út úr skrúfstykkinu. Síðan er sorfið fremst
á röðina, sem upp veit, skáhalt snið fram af járninu,
sem nái 4 cm. upp á legginn, og sé gert svo djúpt nið-
ur fremst, að nær því taki út á hliðarraðir járnsins.
Siðan er þjölinni snúið eftir endilöngu járninu, og sorfið
með röðinni á lienni innan úr vinklinum, og þarf sú
skora að ná að minsta kosti 2 cm. upp í legginn. svo-
að vinkillinn komi vel út, þó að djúpt sé merkt. Á efri
enda þess er bezt að beygja hringmyndaða iykkju til
þess að halda um. Enginn skyldi höggva vinkilinn á
með meitli.
Kostir þeir, sem þetta merki hefir fram yfir venju-
leg tölubrennimörk, eru:
1. Að brennijárnið kostar að eins 30—40 aura, og
hver fátæklingur getur því veitt sér það.
2. Merkið kemur skýrara út á horninu en tölustafir.
3. Þegar brennimerkt er, sest minni sori í járnið, og
er auðveldara að hreinsa það.
4. Hver sem hefir þjöl getur skýrt járnið upp og gert
það sem nýtt á 2—3 mínútum.
Með svona löguðu vinkilbrennijárni má vel merkja
5 stafi í einni hitu, en betra væri þó fyrir þá, sem hafa