Búnaðarrit - 01.01.1912, Síða 313
BÚNAÐARRIT
309
ab fara. Testalinið eru t.veir vökvar, sem bornir eru á
steypuna hvor á eftir öSrum. Þegar þeir blandast saman
inni í holunum á steinsteypunni, fellast úr efni, sem gera
yfirborS steinsteypunnar vatnshelt.
Edison ivaterproofmg paint er þunnur og léttur
vökvi, og gufar mestur hluti hans burtu viS 100° C. og
jafnvel miklu lægri hita. ÞaS sem eftir verSur er harpix-
kent efni, sem vatniS heflr afar-litla viSloSan viS. Þar
eð efni þetta er þunt, gengur það all-langt inn í stein-
steypu, og eru því mjög mikil líkindi til, að það eyði-
leggist miklu seinna en þau efni, er mjög lítið ganga
inn í steypuna, svo sem þau tvö hin siðast nefndu. —
Edison waterproofing paint er borið á tvisvar með 1—2
daga millibili, og ríður á að steypan sé vel þur undir.
Gerir það steypuna svo vatnshelda, að væta virðist ekki
hrína neitt á henni. Því miður get eg ekki sagt með
vissu um, að svo komnu, hvað efni þetta kostar, eða
hve mikið þarf af því á tiltekinn flöt.
Þótt það komi ekki beinlínis þessu máli við. skal
eg þó geta þess, að eg reyndi Edison waterproofing paint
á grásteini héðan úr Reykjavík, Svo sem kunnugt er
gengur vatn mjög í grásteininn, og það svo, að menn
skirrast við að nota hann í veggi, nema hann sé hulinn
sementshúð. Edison waterproofing paint gerir hann svo
vatnsheldan, að vatn getur staðið á honum klukku-
st.undum saman án þess að ganga inn í hann, og þeg-
ar hann er brot.inn í sundur, sést að efnið hefir gengið
fulla 2 millímetra inn í steininn. Auðvitað mætti gera
grástein vatnsheldan með málningu eða jafnvel testa-
iíni. En gallinn á þeim er, að þau breyta lit steinsins
og öllu útliti mjög mikið, en það gerir Edison water-
proofing paint nálega ekki, gerir hann að eins jögn dekkri.
Eg hygg því að efni þetta Lgeti haft talsverða framtíð
fyrir sér, til að verja grástein og aðrar lausar steinteg-
undir fyrir áhrifum vatns og lofts.
Áður en eg skilst við þett.a mál, skal eg taka það