Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1956, Blaðsíða 21
19
hluta, sem eldri og ríkari háskólar geta veitt nemendum sínum.
En vandur vill hann vera að virðingu sinni og ykkar allra,
borgara sinna. Ég býð ykkur velkomna, ungu stúdentar. Komið
og veitið viðtöku háskólaborgarabréfum ykkar.
III. GERÐIR HÁSKÓLARÁÐS
Embætti og kennarar.
Hinn 24. nóv. 1955 var dr. med. Sigurður Samúélsson skipaður
prófessor í lyflæknisfræði frá 1. desember að telja.
Próf. dr. Leifi Ásgeirssyni var aftur veitt leyfi frá kennslu-
skyldu til loka kennsluársins. Kennslu hans önnuðust cand. mag.
Bjöm Bjamason, Magnús Magnússon, M. A. og Þorbjöm Karls-
son verkfræðingur.
Próf. Níels Dungal var veitt leyfi frá kennslu um sex vikna
skeið frá 1. nóv. til þess að sækja alþjóðaráðstefnu í Rio de
Janeiro um ofnæmissjúkdóma.
Próf. dr. Einari Ól. Sveinssyni var veitt leyfi frá kennslu í 6
vikur frá 20. sept. til fyrirlestrahalds við háskóla í Danmörku,
Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.
Launakjör.
Þegar frumvarp til nýrra launalaga var lagt fyrir Alþingi
haustið 1955, töldu háskólakennarar, að ekki væri unandi við
Þau launakjör, sem starfsmönnum háskólans væru þar ætluð.
Var erindi um þetta efni sent til Alþingis, og fékkst þá að mestu
leyti sú leiðrétting, sem farið var fram á.
Háskólalög og reglugerð.
Þess er getið í Árbók 1953—’54, bls. 13, að kosin hafi verið
nefnd til endurskoðunar háskólalaga og reglugerðar. Vann
nefndin af kappi vormisserið 1954, en veturinn 1954—’55 starf-
aði nefndin ekki sökum fjarveru tveggja nefndarmanna, er
höfðu leyfi frá kennslu og voru erlendis. Haustið 1955 voru
kosnir í nefndina prófessorarnir dr. Stexngrimur J. Þorsteins-