Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1956, Qupperneq 94
92
Eyrarsund, af ungum stúdentum, menntamönnum og skáldum,
sem við sterk áhrif utan frá fundu hið dýpsta í sjálfum sér, eðli
síns eigin lands og þjóðarmenningu. Þessu mun sagan ekki
gleyma. Menning Islands, sem reis svo furðulega hátt á dögum
hins foma þjóðveldis eins og hinar fornu íslenzku skinnbækur
votta, sögurnar og eddurnar, ber líka vitni um frjósöm menn-
ingartengsl milli Islands og landa Vestur-Evrópu, og þá einkum
Norðurlandaþjóðanna, á þessum löngu liðna tíma. Síðan hefir
þjóðmenning vor, sem grundvallast á hinni fomu, þrátt fyrir
örðug skilyrði tímum saman, frjóvgast af menningarlegum
áhrifum utan frá. Slík menningarleg sambönd og áhrif era
sjálfsagt öllum þjóðum holl og nauðsynleg, en ekki sízt af-
skekktri eyþjóð eins og vorri. Þetta er öllum ljóst, og ekki sízt
þeim mönnum, sem starfa við æðstu menntastofnun þjóðar-
innar. Háskóli vor hefir jafnan lagt stund á að hér yrði höfuð-
miðstöð rannsókna í sögu íslands, fombókmenntum íslands og
vorri gömlu þjóðtungu, sem eitt sinn gekk um öll Norðurlönd.
Það er sannfæring vor, að með þessum hætti munum við inna
af hendi mikilvægt starf eigi aðeins fyrir þjóð vora, heldur og
bræðraþjóðir vorar á Norðurlöndum, sem jafnan munu eiga
margs að leita varðandi sögu sína og þjóðmenningu til íslenzkra
fornrita. 1 öðram visindagreinum viljum vér fylgjast með kröf-
um tímans og stöðugum framföram. Það er líka víst, að stofn-
un Háskóla Islands hefir síður en svo orðið til þess að einangra
þjóðina menningarlega séð. Ég sagði, að Háskóli Islands hefði
verið stofnaður sem tákn þess staðfasta vilja þjóðar vorrar að
endurheimta sjálfstæði sitt. Sá draumur hefir rætzt. En hrak-
spárnar um menningarlega einangrun þjóðarinnar hafa hins
vegar ekki rætzt. Þvert á móti, menningarlega séð hefir Island
aldrei verið tengt fjölþættari tengslum við umheiminn en nú í
dag. Vil ég þar einkum nefna nána samstöðu Islands við frænd-
þjóðirnar á Norðurlöndum. Ég held líka, að mér sé óhætt að
fullyrða, að þrátt fyrir þær breytingar, sem orðið hafa á sam-
bandi Islands og Danmerkur síðan 1911, séu þessi lönd jafnvel
nánar tengd nú en þá, tengd böndum velvildar og vináttu, bönd-
um samúðar og gagnkvæms skilnings, böndum menningar og