Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 4

Stúdentablaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 4
OOl.Kristin er fókuseruð ísínu starfi SKÓT.TNN f UPPSTOKKUN VIÐTAL VIÐ KRISTÍNU INGÓLFSDÓTTUR REKTOR Ég skunda upp tröppumar á einni virðulegustu byggingu landsins, Aðalbyggingu Háskóla íslands. Ferðinni er heitið á skrifstofu rektors. Leiðin liggur inn suðurganginn fram hjá stórum innrömmuðum Ijósmyndum af forverum Kristínar Ingólfsdóttur í rektorsstól. Virðulegir karlmenn í jakkafötum, allir alvarlegir, nema Armann Snœvarr sem brosir svo fallega. Ljósmyndin af Kristínu í framtíðinni mun án efa lífga upp á karlaskarann á ganginum. Ég fce mér sœti við skrifstofuna og fyrr en varir kemur Kristín og heilsar mér með bros á vör. Hún vísar mér inn og biður mig að hinkra í tvœr. Ég virði fyrir mér rúmgott ogbjart rými skrifstofunnar. Stórirgluggar til austurs hleypa vorsólmni inn en málverkin á veggjunum stela athygli minni. Tilkomumikil Hekla Georgs Guðna hylur nánast alveg stóran vegg að baki skrifborði Kristínar og myndir eftir Þorvald Skulason, Nínu Tryggvadóttur og Hring Jóhannesson gleðja einnig augað. Fjólubláar og lifandi orkídeur á skrifborðinu gefa líka til kynna að hér hefur smekkmanneskja hreiðrað um sig. Tvcer mínútur eru liðnar og við Kristín fáum okkur sœti við stórt hringborð. Umrœðuefnið er sameining Háskóla íslands og Kennaraháskóla íslands sem mun formlega takagildi l.júlí nœstkomandi. MEIRI FJÖLBREYTNI OG AUKIN STOÐÞJÓNUSTA Kristínsegirsameiningunaveragagnkvæmanávinning sem muni styrkja báða skólana. „Meginmarkmiðið er að bæta kennaramenntun í landinu en jafnframt að efla rannsóknir á sviði uppeldis- og menntavísinda. Sameining af þessu tagi tekur tíma. Það verður ekki allt tilbúið 1. júlí en við verðum komin mjög langt og ætlum síðan að gefa okkur tíma til þess að þróa uppbyggingu námsins og samþættingu milli þessara tveggja eininga.” Hún segir skólann vera í uppstokkun, verið sé að endurskoða stjórnskipulag skólans samtímis sameiningu og munu ellefu deildir Háskólans og Kennaraháskólinn verða að fimm sviðum: Félagsvísindasviði, heilbrigðisvísindasviði, hugvísindasviði, menntavísindasviði og verkfræði- og náttúruvisindasviði. Núverandi nám Kennaraháskóla íslands, sem og uppeldis- og menntunarfræðiskor HÍ munutilheyramenntavísindasviðieftirsameininguna. Kristin segir að háskólaráð beggja skólanna stefni að því að starfsemi núverandi Kennaraháskóla flytjist á háskólalóðina innan fimm ára. „Við teljum það mjög mikilvægt til þess að góður árangur náist í þessari samþættingu. Það þyrfti að byggja undir starfsemi menntavísindasviðs og við erum að skoða möguleika á hornlóðinni við Suðurgötu og Hjarðarhaga.” Hún bætir við að til þess að svo geti orðið þurfi breytingu á deiliskipulagi, en viðræður séu í gangi varðandi lóðina, bæði við borgaryfirvöld og menntamálaráðuneyti. Með sameiningunni fjölgar háskólanemum úr tæplega tíu þúsund í 13 -14 þúsund og segir Kristín að svigrúm til náms muni aukast í kjölfarið, það skapist meiri fjölbreytni með þverfaglegu námi. Nemendur annarra sviða geti tekið námskeið á menntavisindasviði sem áður var einungis boðið upp á í Kennaraháskólanum. Einnig megi vænta breytinga á stoðþjónustu í öllum Háskólanum. „Við erum að endurskipuleggja Háskólann með það að markmiði að auka stoðþjónustu við kennara og nemendur og sty rkja skólann faglega,” segir Kristín. Hún segir að bókasafn KHÍ verði rekið með svipuðu sniði til að byrja með en stoðþjónusta á borð við námsráðgjöf og nemendaskrá verði samþætt. Aðspurð um stúdentaíbúðir segir hún það flókið mál sem sé enn í vinnslu, viðræður séu enn í gangi á milli Stúdentaráðs HÍ og KHI. NÝR HÁSKÓLAVEFUR Þann 1. júlí mun sameining skólanna tveggja verða sýnileg með opnun nýs háskólavefjar með breyttu útliti. Uglan verður endurbætt og nafn hinna sameinuðu skóla verður Háskóli Islands. Kristín verður i fararbroddi en rektor KHÍ, Ólafur Proppé, hefur óskað eftir að láta af störfum vegnar aldurs. Kristín hefur orð á því að það hafi verið einstök upplifun að vinna með Ólafi að sameiningu skólanna tveggja. „Hann átti frumkvæðið að því að skoða möguleika á sameiningu ásamt Páli Skúlasyni, fyrrverandi rektor. Ólafur hefur lagt sig gífurlega mikið fram til þess að þetta megi takast sem allra best. Það er sérstök unun að vinna með honum.” Aðspurð um álit sitt á Háskólatorginu segir Kristín að auk glæsilegs útlits þá hafi torgið haft mun meiri áhrif á starfsemi stofnunarinnar en hún gerði sér grein fyrir. „Þetta gefur Háskólanum alveg nýja vídd. Fyrir utan staðgóðan mat í fallegu umhverfi þá hefur þetta andlega mjög styrkjandi áhrif á allt háskólasamfélagið. Bæði nemendur og kennarar úr öllum deildum setjast niður, borða saman og spjalla. Það að fólk úr ólíkum deildum hittist hefur gífurlega mikið að segja. Sjóndeildarhringurinn breikkar og nýjar hugmyndir kvikna. Maður áttaði sig kannski ekki á því fyrr en við fengum Háskólatorgið hversu mikið okkur hefur skort svona sameiningarstað.” VÍSINDAMENN Á HEIMSMÆLIKVARÐA Kristín er komin á flug og áhuginn á starfinu leynir sér ekki. Hún hyggst fljúga enn hærra og er keik þegar talið berst að hundrað bestu háskólum í heimi. Leynt og ljóst stefnir hún að því markmiði að koma Háskóla íslands í þann hóp. „Það er full ástæða til þess að setja sér háleit markmið sem eru í senn nauðsynleg fyrir Háskólann og samfélagið, en líka raunhæf. Við undirbjuggum stefnumótun okkar mjög vel og ég tel að við höfum alla burði til að ná langt.” Segja má að HÍ hafi stigið skref fram á við í byrjun apríl en þá var gengið frá samningi um stúdentaskipti við hinn virta bandarískaháskóla, California Institute of Technology (CALTECH). Kristín segir skólann hafa verið í efstu fimm sætum á alþjóðlegum matslistum í mörg ár. Þrír nemendur frá HÍ hljóta þann heiður að fara til CALTECH í sumar til að vinna að vísindaverkefnum, einn úr efnafræði sem mun m.a. vinna með nóbelsverðlaunahafa í efnafræði, ein úr líffræði og einn úr verkfræði. Háskóli íslands mun síðan taka á móti nemendum frá CALTECH í jarðvísinum. Kristin segir samstarfið við skólann mjög spennandi og vonar að þetta sé bara byrjunin. Vísindamenn frá CALTECH hafi heimsótt HI á vordögum í þeim tilgangi að halda fyrirlestraogkannahvortgrundvöllurværiásamstarfi í vísindum. „Þeir kynntu sér starfsemi í jarðvísindum, sameindalíffræði, verkfræði og örtækni og það var ánægjulegt að sjá hversu hrifnir þeir voru af starfinu innan Háskólans og vísindamönnum okkar sem eru á heimsmælikvarða,” segir Kristín og bætir við að heimsóknin hafi leitt í ljós mikinn áhuga á samstarfi HÍ ogCALTECH. „Það er ekkert sjálfgefið að lítill skóli í fámennu landi nái þeim árangri að vera eftirsóttur samstarfsaðili við virtustu háskóla heims." HANNES HÓLMSTEINN - EITT PRÓMILL AF KENNARALIÐINU En þrátt fyrir framsækið starf í Háskóla íslands kom upp mál fyrir skömmu sem að sumra mati skyggði á vegsemd skólans og virðingu. Kristín viðurkennir að mál Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, prófessors í stjórnmálafræði, hafi verið álitshnekkir fyrir Háskólann en neitar því að það muni hafa mikil áhrif á orðspor skólans. „Þetta er mál sem snertir einn starfsmann af þúsund, eitt prómill af mannauði kennaraliðsins. Hér er unnið af heilindum, krafti og miklum metnaði. Við erum búin að ljúka þessu máli og læra af því þannig að þetta á ekki að geta komið fyrir aftur.” Hún segir að þegar málið hafi verið kært á sínum tíma hafi ekki verið stoð í lögum fyrir starf siðanefndar innan HÍ. „En með lögum um háskóla frá 2006 kom þessi lagastoð og það breytti mjög miklu. Með henni gefst formlegur vettvangur til að taka á málum af þessu tagi,” segir Kristín en viðurkennir að mál Hannesar Hólmsteins hafi verið erfitt viðureignar. „Sá lagarammi sem okkur er gert að starfa eftir er mjög strangur og því kynntist ég sérstaklega í þessu máli.” Hún telur jafnframt, burtséð fráþessu tiltekna máli, að nauðsynlegt sé að endurskoða lagarammann til þess að opinberar stofnanir geti starfað með eðlilegum hætti í samkeppnisumhverfi. Viðtalinuerlokiðendastyttistíhádegismat.Garnirnar gaula og kominn tími á að kveðja. Háskólatorgið heillar með hollum og góðum mat og aldrei að vita nema nýjar hugmyndir kvikni þegar sest er niður með nemendum úr ellefu ólíkum deildum - afsakið, fimm nýjum sviðum. ■

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.