Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 16

Stúdentablaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 16
IPOD BREYTTAR FORSENDUR Ég veki þ\ri oft fyrir mér hvemig ég komst afáður en ég eignaðist iPod. Án hansgœti ég ekki skapað mitt eigið tónlistarumhverfi hvencer sem erog hvar sem ég erstaddur. Með iPod í eyrunumgetur manrri liðið líkt og þátttakanda i sinni uppáhaldskvikmynd og breytt hversdagslegum aðstœðum í œvintýri. iPod gerir manni kleift að stjóma sýn sinni á umhverfið á mun öflugri hátt hetdur en nokkur önnur tœkni. í heimi þarsem viðhöfum litla stjórnáhlutunumgeturverið gefandi að geta stjómað þvi hvemig maður upptifir sitt nánasta umhverfi. Segjum sem svo að maður búi sér til lagalista sem maður hlustar á meðan labbað er um götur Reykjavikurborgar; lögin mann svo á vissa staði og tímabil, en hin eiginlegu htjóð borgarinnar heyrast ekki því maður er sjátfur við stjðmvölrnn og stjðmarþvihvemigmaður upptifir umhverfið. í dag eru fjögur ár síðan ég borgaði fyrir iPod á ebay. Eftir sex mánaða bið og þrjátíu tölvupósta sætti ég mig við að ég hafði lent í internetsvindli og í kjölfarið tapað orlofinu mínu. Þessir sex mánuðir voru lengi að líða, ég beið með mikilli eftirvæntingu eftir þessu undratæki. Loks eftir að ég sætti mig við tapið, varð ég mér úti um einn í fríhöfninni. Þetta var annarrar kynslóðar iPod og það má með sanni segja hann hafi breytt mörgu í mínu lífi. BREYTT UMHVERFI En hvaða breytingar eru þetta sem iPod hefur borið á borð með sér síðan hann kom fyrst á markað árið 2001? Efvið lítum áhvað iPodhefurlagt á vogarskálar tónlistarsöguþessaáratugar.séstfljóttaðþaðermargt, enda hefur þessi áratugur verið gríðarlega blómlegur. Segja má að í dag sé iPod hluti af afar skemmtilegu tónlistarumhverfi sem skapast hefur á síðustu árum. Áður fyrr voru það ákveðnir fjölmiðlar sem stjórnuðu heitustu straumum og stefnum í tónlist, oftast var eitthvað eitt langmest áberandi, hvort sem það var nýbylgja, grunge eða britpopp, allt kom í tímabilum. En með tilkomu iPod, tónlistarblogga og annarra netmiðla er stefnan ekki eins afgerandi. Allt leyfist, fólk býr til sitt eigið tónlistarumhverfi með iPod. Þú þarft ekki lengur að reiða þig á útvarp til að heyra nýja tónlist þegar þú ert með þína eigin útvarpsstöð í vasanum allan daginn. Fólk fer á Netið, les um tónlist, nær í hana og skellir henni inn á iPodinn sinn. Vefir eins og Myspace, Facebook og YouTube leika líka stórt hlutverk í þessu ferli. Minni hljómsveitir hafa notið þessa fyrirkomulags. Sá mikli hraði sem iPod hefur skapað auðveldar hljómsveitum að koma sér á framfæri. Flest tónlistarblogg bjóða upp á mp3 lög sem hægt er að hlaða jafnóðum inn á iPod og iTunes verslunin býður upp á frí niðurhöl með upprennandi hljómsveitum í hverri viku. Listamenn geta líka dreift efni sínu í gegnum iTunes verslun Apple. Þeir listamenn sem eru samningslausir fá 91% af tekjum af sölu laga sinna á iTunes.com. Margt er þó umdeilanlegt við þetta umhverfi, líkt og spurningin um hvernig skuli verja höfundarrétt tónlistar. Eitthvað þarf jú að gera til þess að samhljómur skapist milli niðurhalara og þeirra sem eiga þau verk sem náð er í. Margir spyrja sig hvort tónlistariðnaðurinn eigi að leyfa flutning tónlistar án gjalds og reglugerða 1 tækjum á boð við iPod. Hönnun og virkni iPod hvetur þó til löglegrar verslunar með tónlist á Netinu. Á fjórum árum hafa selst yfir fjórir milljarðar laga á heimasíðu iTunes verslunarinnar, sem sárvantar hér á landi. PLATA VS. PLAYLIST En ekki eru allir jafn sáttir við þetta undratæki, sem orðið er tákn fyrir allt það sem tengist hinu nýja tónlistarumhverfi. Finna má marga óvildarmenn iPod, sem óttast meðal annars að iPod og niðurhal tónlistar geti valdið því að platan sem verk muni deyja. Það hlusti enginn lengur á heilar plötur heldur aðeins lag og lag. „Playlistinn" eða lagalistinn svokallaði sé að koma í stað hinnar klassísku plötu. Ef við skoðum það augljósa þá lítur fólk allt öðrum augum á neysluform tónlistar í dag heldur en áður en iPod var settur á markað. Fyrsta söluform tónlistar var vínylplatan. Þar voru tvær hliðar með 20 mínútum af efni á hvorri hlið. Á níunda áratug síðustu aldar kom svo geisladiskurinn til sögunnar, þar sem hægt var að koma rúmum 70 mínútum af efni að. Mörg bönd reyndu með misgóðum árangri að fylla hann og oft hafði fólk ekki þolinmæði til þess að hlusta á allan diskinn. Núna eru engin takmörk á því á hvernig formi listamenn geta selt vörur sínar. Hægt er að einblína á eitt ákveðið lag, gefa út þrjú lög eða jafnvel eitt 20 mínútna verk. Áður fyrr fylgdu flestir sama forminu en núna er allt opið. Það hefur þó sýnt sig að almenningur vill ekki of langt efni og það vill ráða því sjálft hvernig það hlustar á tónlist. Lou Reed gaf út disk fyrir nokkrum árum þar sem hann skrifaði framan á diskinn að fólk ætti ekki að hlusta á eitt lag í einu, fólk ætti frekar að setjast niður og hlusta allan diskinn því hann hefði verið saminn sem verk sem ætti að njóta sem heildar. Fyrir þetta uppskar Reed mikla gagnrýni. En líkt og Reed sjá margir ýmislegt hættulegt við þessa þróun og vilja meina að fólk hlusti nú frekar á tónlist eftir skemmtanagildi heldur en „gæðum.“ Tónlist sem slík geti misst mark sitt sem listform með þessu áframhaldi. Segja má að vissulega hafi þeir eitthvað til síns máls, platan er ekki eins sterkt form og hún var áður en iPod kom á markað. En auðvitað er iPod bara góð viðbót við flóruna. Það munu ef til vill margir hætta að hlusta á heilar plötur, en það munu aldrei allir gera það. Sú tilfinning að láta nýja plötu sem grípur mann renna í gegnum spilarann gleymist seint, og munu því margir halda áfram að hlusta á plötur sem heild. Segja má að tónlistaráhugamenn séu enn að fagna því að iPod skuli hafi verið settur á markað. Hann hefur breytt ótrúlega mörgu og tónlistariðnaðurinn verður aldrei samur. iPod gefur fólki tækifæri á að flýja hversdagleikann og getur gert dimman dag bjartari. ■ 001-Tónhlaða og spilastokkur

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.