Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 15

Stúdentablaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 15
AF MÓPURSÝKI EÐA: NOKKRUM ATRIÐUM KOMIÐ Á HPJEINT 001. Krotskop ekki sé hægt að krefjast þess að þeir taki trúarádeilu af sömu ró og aðrir“. Svarið við þessu er í fyrsta lagi að múslimar vita - ólíkt Símoni - að Múhameð spámaður þeirra gekk ekki um með sprengju í stað höfuðfats, og í öðru lagi að þeim ber ekki skylda, frekar en öðrum, til að sitja undir háði og ofsóknum fyrir opnum tjöldum frá öðrum þjóðfélagshópum á grundvelli trúar eða kynþáttar. Samanburður Símons við umburðarlyndi Vesturlandabúa gagnvart „trúarádeilu" hittir ekki í mark, því þar á hann líkast til við þá ádeilu sem Kristnir menn setja fram á eigin trú og menningu, og er gjörólík því þegar ráðist er á menningu annarra.1 2 í ljósi þess hve stórkarlalegur Símon er þegar hann krefst þess af múslimum að þeir kyngi hvers kyns kynþáttahatri vekur það furðu að i umfjöllun sinni um íslamista og naívista er Símon afar reiðubúinn að beita félagslegum skýringum á atferli meðlima í hryðjuverkasamtökunum A1 Kaída: „Þegar maður flýgur flugvél á háhýsi," útskýrir Símon, „er það ekki íslam sem sem ólgar í æðum hans heldur reiði yfir stríði og heimsvaldastefnu Bandaríkjanna." Þessar fullyrðingar eru sláandi, því hér mætti halda að samkvæmt heimssýn Símons væri mun nærtækara að grípa til hins notadrjúga skýringartækis, hysteríunnar. Hvaða barnalegi póstmódernismi og afstæðishyggja er það hjá Símoni að fordæma ekki þessa öfgasinnuðu og hysterisku hryðjuverkamenn skilyrðislaust? Og svo spurt sé í alvöru: Hvers vegna er það ekki sama reiði yfir stríði og heimsvaldastefnu, að viðbættri rasískri innflytjendalöggjöf og síendurteknum ofsóknum í fjölmiðlum, sem olli mótmælum múslima um heim allan við skopteikningamálinu? Símon hefur vafalaust svarið við því, enda er hann með mikið milli eyrnanna, hefur kynnt sér íslam og þarf ekki hjálp við að skilja múslima.a Höfundur er stjórnarformaður Nýhils, póstmódernisti og menningarlegur afstœðishyggjumaður 1 Frábær t dæmi um slíkan ýkjumálf lutning er bókin í slamistar og naívistar sem var hampað með fáheyrðum hætti í bókaþætti Egils Helgasonar, Kiljunni. Vart stendur steinn yfir steini í röksemdum bókarinnar, líkt og Ingólfur Gislason, stærðfræðingur og ljóðskáld, bendir á i umfjöllun á Kistunni (www.kistan.is, „Fasistar og hálfvitar"). í sama Kilju-þætti lýsti Þórdfs nokkur Bachmann því að múslimar væru nú í þann mund að taka upp Sharia-lög í borginni Malmö i Sviþjóð - en áðurnefndur Sigurður Ólafsson, fyrrum íbúi i Malmö, fjallar afar vel um þá sögusögn i grein sem einnig birtist á Kistunni (www.kistan.is, „Afhoggnar hendur og grýttar konur í Malmö“). Símon segir íslamista og naivista hafa flett ofan af „þó nokkuð mörgum ofureinföldunum" - gaman væri að heyra hverjar þær eru. 2 Jafnan er látið sem slik ádeila eða innri gagnrýni fyrirfinnist ekki i íslam, jafnvel þótt þekktir leiðtogar múslima á borð við Tariq Ramadan hafi haldið henni á lofti - og einnig má benda á viðtal mitt við Yousef Tamimi i íslam með afslætti („Maður verður að hafa húmor fyrir sjálfum sér“, bls. 142- 151). Það má þó taka undir að á Vesturlöndum hefur á siðustu áratugum skapast hefð fyrir svæsnari skopstælingum á ýmsum trúarlegum málefnum en tiðkast annars staðar í heiminum - sbr. fræga Síma-auglýsingu Jóns Gnarr í hlutverki Júdasar - en því má ekki rugla saman við aðra vestræna hefð, sem er hefð kynþáttahaturs og yfirburðahugmynda gagnvart öðrum trúarbrögðum og menningu. Skopteikningar gegna ekki siður hlutverki í þeirri hefð en hinni sakleysilegu ‘trúarádeilu’-hefð sem Simon er sannfærður um að skopteikningar Jótlandspóstsins tilheyri.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.