Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 23

Stúdentablaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 23
..ÉG GIFTIMIG HEIMAIHASKÓLA66 „Égheflifað tímana tvenna hérískólanum. Égséþað betur með hverjum deginum sem líður en mér líður mjög vel héma,“ segir Brynhildur Brynjólfsdóttir, verkefnisstjóri á kennslusviði Háskóla íslands. „Ég og skólinn höfum þolað súrt og sœtt saman og hafa árin hér verið mikill örlagavaldur í mínu lífi." „í janúar árið 1958 var pabbi skipaður umsjónarmaður Háskólans en við fjölskyldan fluttum inn í kjallaraíbúð Aðalbyggingarinnar fyrsta júlí sama ár segir Brynhildur. íbúðin er enn þá til og er í suðurenda Aðalbyggingarinnar og snýr öll í vestur. Þess má geta að hæðin upp í gluggana er um 1.90 sentimetrar. „Þegar við fluttum inn í íbúðina var þetta eins og moldargröf, það var dimmt og ekki beint fýsilegur staður til að búa á,“ segir Brynhildur. Nokkrum árum seinna var Hótel Saga byggð hérna á móti, þá birti skyndilega til í íbúðinni því birtan endurkastaðist af hvítum flötum hótelsins. Brynhildur var þrettán ára þegar fjölskyldan flutti í íbúðina. Pabbi hennar starfaði í þrjú ár sem umsjónarmaður skólans áður en hann lést, en síðar tók mamma hennar við og gegndi starfinu í 27 ár. Það tók þó nefnd skólans tvö ár að skipa hana umsjónarmann, líklegast af því að hún var kona. EKKI EINS OG ALLAR AÐRAR ÍBÚÐIR íbúðin átti sér ýmsa skrýtna en skemmtilega staði. Á bak við baðherbergið var ljósmyndaherbergi þar sem áhugaljósmyndari hafði aðstöðu, en Brynhildi þótti það alltaf mjög spennandi. Brennsluofn var í íbúðinni þar sem prófúrlausnir voru brenndar og hjálpaði hún foreldrum sínum oft við það. Brynhildur segist hafa verið kunnug í Vesturbænum á þessum tíma og að svæðið í kring um skólann hafi verið einn stór melur þar sem baldursbrárnar uxu. „Mér fannst hræðilegt að flytja hingað í fyrstu en svo rættist mjög hratt úr því. Síðan hefur leið mín legið með skólanum, viljandi og óviljandi, alveg alla tíð síðan; en ég held upp á hálfrar aldar líf mitt með skólanum í sumar," segir Brynhildur og kímir. ÆTLAÐI HVORKI AÐ VINNA HÉRNA NÉ LÆRA „Það var eitt sem ég ætlaði aldrei að gera. Ég ætlaði hvorki að vinna hérna né læra. Ég býst við því að það hafi verið áhrif frá því að búa í skólanum," segir Brynhildur. Eftir stúdentspróf fór hún til Danmerkur og ætlaði að læra þar en ekkert varð úr því. Brynhildur skráði sig í nám í lögfræði við skólann, en hún var verslunarskólagengin sem þótti mjög mikil menntun fyrir konur á þessum árum. En Brynhildur hefur unnið í skólanum í tæp 32 ár og byrjaði á aðalskrifstofu skólans sem þá var í Aðalbyggingu. „Ég byrjaði á þeim tíma þegar það var verið að ræða hvort það ætti að taka upp rafrænt kerfi. Þetta var bara handavinna út í eitt.“ Nafnaskráin var á þessum tíma það eina sem ekki var unnið á skrifstofunni því að hún var tekin með gataspjöldum og unnin úti í bæ. Brynhildur hafði verið í sumarvinnu og viðloðandi nemendaskrá áður en hún byrjaði þar í fullu starfi. Hún hefur unnið undir stjórn sex rektora í sinni tíð, en hefur þekkt miklu fleiri, alveg frá 1958. „Ég hef líka unnið önnur störf við skólann t.d. 002. Bimma&hi.is garðavinnu hérna fyrir utan Aðalbyggingu í heil þrjú sumur,“ segir Brynhildur. „Ég gerði nokkrar tilraunir til að nema við skólann. Ég hélt að ég gæti byrjað að nema lítils háttar með vinnunni. Árið 1966 byrjaði ég i lögfræði en þá átti ég von á mínu fyrsta barni þannig að þetta gekk bara ekki.“ Brynhildur hefur reynt oft að nema við skólann. „Þegar ég byrjaði eftir að ég átti barnið var ég í fy rstu kennslustofu hérna í Aðalbyggingu í tímum og ég heyrði í barninu niðri í íbúð því að íbúðin er undir kennslustofunni. Ég gat þetta ekki og hætti." Eiginmaður Brynhildar er lögfræðingur en í þá daga stóð valið á milli þess hvort foreldrið ætlaði í nám. ÞURFTU PASSA TIL AÐ KOMASTINN Árið 1968 var haldinn Nato-fundur í Aðalbyggingunni og þá var allt húsið innsiglað. Orðabók Háskólans var uppi á þriðju hæð skólans en fógetinn var fenginn til að innsigla hana, svo Nato kæmist ekki þar inn. „Það voru vopnaðir verðir við allar dyr og við fengum öll passa til að komast út úr húsinu og inn í það aftur. Það var gerður aðsúgur að byggingunni því að Arnar Jónsson og Birna Þórðardóttir, ásamt föruneyti, komu til að mótmæla fundinum. Ég varð vitni að þessu öllu, innan frá.“ Brynhildur segir að þetta hafi verið vægast sagt sérkennilegt ástand því að fundurinn hafi verið haldinn í óþökk margra innan skólans. „Við mamma vorum síðan fengnar til þess að fara inn í hátíðarsalinn þar sem fundurinn var haldinn og náðarsamlegast tæma úr öskubökkum herramannanna sem þar sátu.“ Brynhildur bjó í íbúðinni í Aðalbyggingu skólans frá árinu 1958 til áramótanna 1969-70, en hún og eiginmaður hennar byrjuðu einmitt búskap í sömu íbúð. Hún hannaði baðherbergið sem enn stendur á neðstu hæðinni og valdi flísarnar á það sjálf. „Síðan gifti ég mig hérna uppi í kapellunni, það var mjög sérstakt. Séra Sigurður Haukur Guðjónsson gaf okkur saman. Veislan var svo í garðstofunni niðri í garði við suðurenda hússins." Elsta barn þeirra hjóna var skírt í húsinu en það var í kjallaraíbúðinni. Þegar Brynhildur var síðan með barnið lítið i vagni fyrir utan íbúðina var það ekki alltaf dans á rósum. „Guðfræðistúdentarnir höfðu kaffiðastöðu sína hérna á efstu hæðinni og hentu sígarettustubbunum sínum bara út um gluggann. Þeir lentu oft á barnavagninum og þá rauk ég upp til að skamma þá. Þeir hættu þessu þó aldrei alveg." VIÐ ERUM Á RÉTTRI LEIÐ „Magnús Már Lárusson, þáverandi rektor, hringdi í mömmu og sagði við hana að það yrði byggð stjórnsýslubygging á milli Aðalbyggingar og íþróttahúss. Þá kæmumst við upp á hæð en þyrftum ekki lengur að búa í kjallara. Þarna kom hugmyndin um byggingu þarna á milli." Brynhildur vinnur nú uppi á þriðju hæð á skrifstofu sinni í Háskólatorgi. Hún segir það hafa verið Páli Skúlasyni, fyrrverandi rektor, að þakka að hugmyndin að byggingunni varð að veruleika. Breytingin á háskólasamfélaginu er í takt við breytta tíma þó að Brynhildi finnst hún stundum hafa lifað þrjá mannsaldra, því að breytingarnar eru svo gríðarlegar. „Þetta eru samt jákvæðar breytingar. Ég tel að við séum á réttri leið.“ ■

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.