Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 12

Stúdentablaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 12
KVENHATUR OG MORÐ í SUÐUR-AMERÍKU í mörgum löndum Suður-Ameríku er mannslífið ekki jafn mikils metið og við eigum að venjast. í Mexikó eru hundruð morða á konum óupplýst og enn fleiri kvenna er saknað. En því miður er ástandið í Mexíkó aðeins toppurinn á ísjakanum í Suður-Ameríku því í Guatemala, El Salvador og Honduras eru morðin ekki talin i hundruðum heldur þúsundum. Rikisstjórnimar aðhafast lítið sem ekkert og kvenhatrið eryfirþyrmandi. Verksmiðjur á landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna hafa sprottið upp síðan fríverslunarsamningur var gerður á milli landanna árið 1990. Þá voru gerðir samningar um að flytja mætti inn vöru án skattaálagningar, þar sem varan er svo unnin að hluta til eða fullkláruð. Skilyrðið fyrir því að vörurnar væru ekki skattlagðar er að þær séu aftur fluttar úr landinu. Verksmiðjurnar sem eru kallaðar „sweat shops” á ensku og „maquiladoras" á spænsku eru aðallega í eigu Bandaríkjamanna. Yfir þrjú þúsund verksmiðjur eru á svæðinu hjá landamærunum og um ein milljón manna vinnur þar. Vinnuaflið er nær eingöngu skipað konum því þær eru ekki jafn kröfuharðar og karlmennirnir þegar kemur að launakjörum og almennum réttindum. Ástæðan fyrir því að þær sækja ekki réttindi sín jafn hart og karlmennirnir liggur eflaust í því að kvenréttindi eru ekki jafn langt á veg komin og við þekkjum hér. Þar sem atvinnuleysi er mjög ríkjandi í þessum heimshluta flykkjast konur frá borgum í suðrinu til norðurhluta Mexíkó til þess að fá vinnu, því þar er jú alltaf vinnu að fá í verksmiðjunum. Þær senda síðan peninga heim til fjölskyldunnar og í mörgum tilfellum eru þær eina fyrirvinna fjölskyldunnar. ENGIN EIGINLEG RANNSÓKN Síðan árið 1993 hafa hræðilegir atburðir átt sér stað í borgunum Juárez og Chihuahua, þar sem nokkrar af verksmiðjunum eru. Konur hafa verið myrtar á leiðinni til og frá vinnu. Þetta eru ungar konur, en í flestum tilfellum eru þær á aldrinum 13 til 22 ára en einnig hafa fundist eldri konur. í Juárez hafa yfir 430 lík fundist, um 600 er saknað og það sem af er af árinu 2008 hafa 40 lík fundist. í Chihuahua hafa 376 konur horfið eða fundist látnar. Rannsókn málsins hefur ekki enn hafist af fullum krafti, en Vicente Fox Quesada, forseti Mexíkó frá 2000-2006, lýsti því yfir árið 2005 að flest morðanna hefðu verið upplýst og morðingjar væru bak við lás og slá. Forsetanum var í framhaldinu bent á að hann þyrfti að vera upplýstari um málið; i raun hefur rannsókn málsins verið nær engin og ýtir það undir sögusagnir varðandi málið. Sumar kvennanna hafa horfið en lík annarra hafa fundist. Þar sem rannsóknin er ekki fagmannleg hefur verið erfitt að greina á milli þess hvort konurnar hafa verið myrtar af raðmorðingja, orðið fórnarlömb mansals, fórnarlömb nauðgana eða djöfladýrkenda eða einfaldlega kvenhaturs. Þessar hörmungar eru mikil skömm fyrir landið. Ekki er víst að morðin hafi verið framin af sama hópnum, heldur getur verið að tveir eða fleiri hópar séu að verki. Ekki hafa fundist nein klámmyndbönd af konunum og ekki hefur lögreglan orðið vör við að verslað sé með líffæri úr þeim. Næstum öll fórnarlömbin urðu fyrir kynferðislegu ofbeldi, þær voru bitnar, lamdar og skornar eða limlestar. Meira en helmingur þeirra dó vegna þess að þær voru kyrktar. Sum líkin eru brennd til þess að fjarlægja öll sönnunargögn. AÐEINS TOPPURINN Á ÍSJAKANUM Það hefur vakið athygli að í hvert skipti sem ríkisstjórnin verður einhvers vísari um málið finnst nýtt lík í eyðimörkinni. Það hefur einnig vakið athygli að morðin eiga sér aðallega stað í febrúar, mars og nóvember og desember. Ein af mögulegum ástæðum morðanna getur verið sú að konur séu hreinlega veiddar; að það sé orðin eins konar íþrótt. Kannski er líklegasta skýringin sú að árásarmennirnir reyna að ná í líffæri til þess að selja. Þó að þessi tilgáta sé líkleg hefur því verið hafnað að slik viðskipti fari fram og talið er líklegra að rándýr hafi borðað þau innyfli sem vantað hefur í stúlkurnar. Fjölskyldur fórnarlambanna eru á barmi örvæntingar og með hverju fórnarlambi minnkar vonin um að einn daginn munu morðin hætta, og enn eykur á örvæntinguna að ekki er nein rannsókn í gangi. Fjölmargar vefsíður er að finna um málið, upplýsingar um fórnarlömbin, sögur af persónulegum upplifunum, kenningar um málið og fleira. Bíómyndin Bordertown fjallar um þessa atburði og heimildarmyndir hafa líka verið gerðar um morðin. Bækur hafa verið gefnar út og ein þeirra, Las muertas de Juárez, segir frá fórnarlömbunum á mjög hjartnæman hátt. Einni stúlkunni var nauðgað á leið sinni heim frá vinnu en hún flúði árásarmennina. Hún var ekki jafnheppin í annað skipti og fannst látin. Hún hélt dagbók og skrifaði um atburðinn: „Ég læt systur mína Juliana fá þessa dagbók. Ef sá sem nauðgaði mér og ég gat sem betur fer flúið frá kemur aftur til að klára það sem hann byrjaði á, getur vitnisburður minn vonandi hjálpað öðrum konum á einhvern hátt. Ég get ekki hætt í vinnunni, við lifum öll á henni, mamma mín sem er ekkja og fimm yngri bræður mínir. Ég verð að halda áfram að ganga í vinnuna, næstu viku og næsta mánuð og næstu ár á sama stað, þangað til ég klára skólann og get forðað mér héðan með fjölskyldunni minni. Ég lifi allavega til þess að segja frá reynslu minni...” Lýsing lögreglunnar á ástandi líkama stúlkunnar þegar hún fannst látin: „Kona, 21 árs, dökk yfirlitum, svart hár. Lík hennar fannst í nágrenni við Lote Bravo, nakin, með brunaför á handleggjum, fótum og brjósti eftir sígarettu. Fætur og hendur bundnir saman með reipi og plastpoki bundinn um höfuðið með snúru. Dauðaorsök er köfnun.” Þó er verst að þetta er aðeins toppurinn á ísjakanum því í Honduras, E1 Salvador og Guatemala eru konur myrtar umvörpum. Siðan 2001 hefur morðum á konum fjölgað svo um munar. í E1 Salvador er tala morðanna komin upp í 2.140 frá 1999 til 2006. í Guatemala höfðu verið framin 2.500 morð frá 2001 til 2007 á konum og stúlkubörnum. Þetta er kallað „femicide” á ensku en „feminicidio” á spænsku. Skýringa hefur verið leitað á þessu gífurlega kvenhatri og ein kenningin er sú að í stofnunum landsins sé kvenhatur við lýði. Morð á konum er ekki metið á sama hátt og morð á karlmönnum. Þó er algengt að morð séu ekki rannsökuð sama hvort fórnarlambið sé kona eða karl, mannslíf eru einfaldlega ekki mikils metin, og enn minna ef manneksjan gegnir ekki merkisstöðu í samfélaginu, t.d. ef manneskjan er „bara” verkakona/ maður. Helsta afsökun ríkisins á þessum slæmu vinnubrögðum er sú að ekki séu næg úrræði til þess að rannsaka öll morðin. Því hefur verið haldið fram að þeir sem eru við stjórnarvölinn í Guatemala hafi ekki að sjónarmiði jöfn réttindi karla og kvenna og það getur verið ein af ástæðunum. Á meðan ekkert er gert vita árásarmennirnir að þeir geta athafnað sig án þess að nokkur lyfti litlafingri og þannig eykst ofbeldið. BBC í Englandi gerði heimildarmynd um þetta ástand sem hét Guatemala: The Paradise of Assassins. Þar var fullyrt að „í Guatemala væri það í tísku að myrða konur, en ekki að taka morðingjana fasta.“ í myndinni tjáir einn árásarmaðurinn sig um það hvers vegna hann fremur morð (andlit hans hefur verið máð út), hann sagði að margar konur dræpi hann sér til skemmtunar, en honum liði líka svo vel að sjá blóðið. Heimildir: Amnesty International http://www.amnesty.org/ Mujeres de Juárez http://www.mujeresdejuarez.org/ María del Socorro Alcalá Iberri y Lucía escalante Greco. 2004. Las muertas de Juárez, la voz viva de las muertas... Editorial libra SSA de DV. Méxic 001. í minningu horfinna mœðra, dœtra ogsystra. o

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.