Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 39

Stúdentablaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 39
til að verja Bandaríkin í stríðinu gegn hryðjuverkum." Heldurðu að þessi ummœli eigi eftir að skaða framboð Obama mikið? „Nei, og það er mjög merkilegt. Þrátt fyrir nokkuð linnulausan fréttaflutning af þessum ekki-fréttum um fánanæluleysi Obama, Jeremiah Wright, prest Obama, og ýkt og ímynduð tengsl hans við William Ayers sem var meðlimur The Weather Underground [róttæk vinstrihreyfing] á sjöunda áratugnum, hefur stuðningur Obama lítið hreyfst. Ef eitthvað er hafa þessar neikvæðu árásir skaðað Clinton.” Er einhver munurástefnu Obama og Clinton? „Já. í utanríkismálum er hún hægra megin við Obama, en í innanríkismálum hefur hún yfirleitt verið lengra til vinstri. Engu að síður virðast margir, bæði hér í Bandaríkjunum, en þó sérstaklega í Evrópu, hafa þá ranghugmynd að Obama sé vinstrisinnaðari. Repúblíkanar hafa verið duglegir að koma þeirri hugmynd að hjá fólki. National Journal, sem er hægrisinnað vikurit, birti meðal annars „rannsókn" sem átti að sýna að Obama væri vinstrisinnaðasti meðlimur öldungadeildarinnar. Sem er auðvitað fáránlegt, þó ekki væri nema vegna þess að Bernie Sanders, öldungadeildarþingmaður frá Vermont sem starfar með þingflokki demókrata er yfirlýstur sósíalisti! Sama tímarit lýsti því reyndar yfir fyrir kosningarnar 2004 að John Kerry væri vinstrisinnaðasti meðlimur öldungadeildarinnar. Repúblíkanar virðast leika þennan leik fyrir hverjar kosningar.Allarhugmyndirumumbætureðafélagslegt réttlæti eru úthrópaðar sem hættulegar öfgar og demókratar málaðir sem varasamir vinstrimenn sem vilja grafa undan „sönnum" bandarískum gildum." Eru einhverjar líkur á að þínu mati að Obama og Clinton fari fram saman? „Það er ákveðin lógík ábak við þáhugmynd. Þauhöfða til ólíkra kjósendahópa. Clinton nýtur meiri stuðnings meðal eldri kvenna, verkamanna og fólks með litla menntun - hópa sem Obama hefur gengið ílla að vinna á sitt band. Nýleg könnun Gallup sýnir líka að nærri þriðjungur kjósenda Clinton myndi frekar kjósa McCain en Obama. Til samanburðar segist innan við fimmtungur kjósenda Obama frekar vilja McCain sem forseta en Clinton. Ég á mjög erfitt með að skilja þessar tölur, en þær liljóta að vera áhyggjuefni fyrir demókrataflokkinn. Undanfarið hefur reyndar verið rætt um að Clinton bjóði sig fram sem ríkisstjóra New York, sem gæti verið áhugavert, því Rudy Giuliani, sem dró framboð sitt til baka eftir niðurlægjandi ósigur í prófkjöri Repúblíkana, hefur líka verið orðaður við ríkisstjórastólinn." ÓFLOKSSBUNDNIR HLIÐHOLLARI DEMÓKRÖTUM Margir hafa gagnrýnt hvernig forvalið fer fram á frambjóðendum flokkana og segja það sérstaklega gallað hjá demókrötum, hvert er þitt álit á því? „Auðvitað mætti kerfið vera einfaldara og gegnsærra. Sumstaðar, eins og í Texas, er kjörfundakerfið fullkomlega út í hött. Það virðist þó ekki hafa komið niður á þátttöku - sem hefur allstaðar verið meiri í ár en nokkru sinni fyrr. Nærri 30 milljón manns hafa þegar tekið þátt í prófkjörum demókrata. Það sem meira er, kjósendur virðast ekki vera komnir með leiða á þessum langa prófkjörsslag. Það verður líka að hafa eitt í huga: Þetta er í fyrsta skipti á síðari tímum sem prófkjörsslagurinn dregst þetta lengi, og atkvæði kjósenda í flestum ríkjum Bandaríkjanna hafa nokkuð vægi í prófkjöri vegna forsetakosninga. Hingað til hafa flokkarnir yfirleitt verið búnir að velja frambjóðanda eftir fáein prófkjör. Kjósendur í Iowa, New Hampshire og Suður-Karólínu hafa fengið að velja forsetaframbjóðendur meðan allir aðrir íbúar Bandaríkjanna hafa þurft að láta sér nægja að fylgjast með úr fjarlægð." Heldurðu að þessi langi tími sem tekið hefur demókrata að velja sér frambjóðanda eigi eftir að draga dilk á eftir sér? „Ég er ekki viss. Annars vegar hefur þetta orðið til þess að demókrötum hefur tekist að virkja fleira fólk en nokkru sinni fyrr, skrá fjölda nýrra kjósenda, sem hefur aftur leitt til þess að skráðum flokksmönnum hefur fjölgað og grasrótin hefur eflst. Þetta endurspeglast í könnun sem Pew birti í mars, sem sýndi að 36% kjósenda eru skráðir sem demókratar, meðan einungis 27% eru skráðir repúblíkanar. Óflokksbundnir kjósendur eru líka hliðhollari demókrötum en undanfarin ár. Ég er ekki í nokkrum vafa um að keppni Obama og Clinton hefur mikið að segja um þetta. Hitt er svo annað mál að það er alltaf ákveðin hætta á að langdregin kosningabarátta verði til þess að kjósendur annars frambjóðandans verði afhuga hinum - að þeir geti ekki sætt sig við að „þeirra" frambjóðandi bíði lægri hlut og kjósi að sitja heima á kjördag. Ef nógu margir sitja heima gæti það tryggt John McCain sigurinn í haust" MCCAIN ER SENÍLT GAMALMENNI Hvernig kemur John McCain þér fyrir sjónir? „Sem tækifærissinnað og senílt gamalmenni! Mér líkaði mjög vel við John McCain fyrir átta árum þegar hann bauð sig fram gegn Bush. Þá kom hann fram sem skynsamur umbótamaður. Fyrstu ár Bush stjórnarinnar var hann líka oft talsmaður skynseminnar í Repúblíkanaflokknum. Hann barðist gegn skattalækkunum Bush, bæði vegna þess að þær gögnuðust fyrst og fremst fólki í allra hæstu tekjuþrepunum og líka vegna þess að þær myndu leiða til svimandi tekjuhalla á ríkissjóði. Hann talaði líka fyrir skynsamri innflytjendalöggjöf, og fordæmdi áhrif trúarofstækismanna á borð við Jerry Falwell innan Repúblíkanaflokksins. En síðan þá hefur hann óumdeilanlega færst til hægri. í efnahagsmálum virðist McCain meira að segja kominn langt hægra megin við Bush. Hann styður nú skattalækkanir og efnahagsstefnu Bush, og hefur lofað skattalækkunum sem munu kosta ríkissjóð nærri 300 milljarða dollara árlega - nærri allt yrði í formi skattalækkana á hagnað stórfyrirtækja og auðmanna. Þar af yrðu skattar á oliufyrirtæki lækkaðir um nærri 4 milljarða í viðbót." EnnúeroftsagtaðMcCainséóhrceddurviðaðfaraeiginleiðir, bandarískir fjölmiðlar tala um að hann sé „a maverick." „Já, fjölmiðlar hafa ekki veitt þessum umsnúningi nægilega athygli, og honum hefur tekist að halda í þessa „maverick" ímynd og hugmyndina að hann sé gerólíkur sitjandi forseta. Og það þó McCain hafi nýverið lýst því yfir í viðtali við útvarpsmanninn Mike Gallagher að hann væri dyggasti stuðningsmaður Bush! En það eru þó sérstaklega hugmyndir McCain um utanríkis- og varnarmál sem gera að verkum að ég hef áhyggjur. Pat Buchanan, sem verður varla sakaður um að vera vinstrimaður, hefur lýst utanríkisstefnu McCain sem „Bush á sterum." Það er ekki heldur traustvekjandi þegar hann talar um að Bandaríkjaher eigi að vera í írak í hundrað ár, eða gantast með að gera loftárásir á íran, syngjandi „bomb bomb bomb, bomb bomb Iran" við laglínu Beach Boys „Barbara Ann.“ Það sérkennilegasta er þó að McCain virðist skorta grundvallarskilning á stjórnmálaástandinu í írak og Mið-Austurlöndum. Hann hefur margsinnis verið staðinn aðþvi að rugla saman Súnni og Shíamúslimum, og sömu leiðis hefur hann ítrekað haldið því fram að Al-Qaeda fái stuðning og þjálfun í íran. Joe Lieberman hefur þurft að hnippa í hann á blaðamannafundi til að leiðrétta stórfurðulegar yfirlýsingar af þessu tagi.“

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.