Stúdentablaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 10
t TTL AÐ HJÁLPA
001.-002. Yngvi Eiríksson er ekki myrkur í máli
Neitar kennarinn þinn að sýna gömul próf? Áttu
enriþá eftir að fá einkunn fyrir ritgerðina sem þú
skilaðir í nóvember? Fcerðu ekki að útskrifast? Hafðu
ekki áhyggjur, nýr hagsmunafulltrúi stúdenta bíður
bókstaflega eftir þvi aðfáað hjálpa þér.
„Ef nemendum finnst að það sé á þeim brotið
er best að tala fyrst við kennara og reyna að fá
úrlausn sinna mála. Ef það gengur hins vegar ekki
þá kem ég inn í myndina. Mitt hlutverk er að reka
réttindaskrifstofu stúdenta og aðstoða stúdenta sem
lenda í vandræðumsegir hagsmunafulltrúinn Yngvi
Eiríksson. „Réttindaskrifstofan hefur verið til svo
árum skiptir en það hefur verið á ábyrgð formanns
að starfrækja hana. Með þessu móti erum við að
reyna að fá meiri breidd á skrifstofuna. Ég mun reka
réttindamál einstakra stúdenta gagnvart stjórnsýslu
Háskólans en ekki síður reyna að koma í veg fyrir
það til framtíðar að deildir geti endalaust bent fólki á
einhvern annan án þess að nokkur lausn fáist."
Hvers konar mál eru „réttindamál"?
„Það geta verið alls kyns hlutir, t.d. sem snerta
einkunnir, próf, aðferðir við námsmat o.fl. - í
rauninni allt sem snýr með einum eða öðrum hætti
að stjórnsýslu Háskólans. Ég aðstoða fólk við að rekja
sig eftir heðfbundnum kvörtunarferlum, og við að
undirbúa mál þegar þau eru komin langt, kannski
fyrir háskólaráð eða áfrýjunarnefnd í kærumálum
háskólanema. En ég vil taka fram að fólki er að
sjálfsögðu einnig frjálst að kvarta upp á eigin spýtur -
ég er bara hér til að hjálpa."
Má segja að staða hagsmunafulltrúa sé tilraunaverkefni?
„ Já, að því ley ti að ef staðan sannar gildi sitt þá munum
við gera kröfu um fjármagn til að geta haldið henni
úti á næsta ári. Nú þegar eru tvö mál fullafgreidd og
hið þriðja í vinnslu, og ég er bara nýbyrjaður, svo við
sjáum hvað setur!"
Hagsmunafulltrúi stúdenta hefur aðsetur á skrifstofu
Stúdentaráðs á 3. hæð Háskólatorgs og er með
viðtalstíma frá 12:30 - 15:00 á mánudögum, 13:00 -
17:00 á miðvikudögum og 11:00 -12:30 á föstudögum.
Þá má hafa samband við hann gegnum póstfangið
ynel@hi.is. ■
RAUÐVÍNOG
r
BOKMENNTÖL..
„Langa vetramótt í höllinni. Við nutum ásta og
fórum okkur að engu óðslega. Hún hafði raðað upp
kertum í svefnherberginu þeirra ogmjúkt kertaljósið
flökti draugálega um loft og veggi. Úti blés káldur
norðanstormur með hríðarbyljum sem lömdu húsið
utan eins og svipur. FuIInœgingin fór um líkama
minn eins og milljón litlir unáðslegir rafstraumar og
ég..r
...rauðvínið var búið. Stúdentinn sem þarna sat var í
miðjum klíðum við lestur undir flísteppi, í náttbuxum,
ullarsokkum og gömlum hálsmálsteigðum bol sem á
stóð „Vaxtalínan" þegar hann greip í tómt. Tómt eins
og veskið, tómt eins og maginn og tómt eins og litla
smá-rauðvínsflaskan sem sat ein á sófaborðinu.
Það er erfitt að vera háskólanemi þegar enginn er
afgangurinn eftir að búið er að borga skólagjöldin,
húsaleiguna, námsbækurnar og eitt „lásí" símafrelsi.
Eftir að strætóferðirnar urðu ókeypis hef ur stúdentinn
loksins efni á að kaupa sér eins og eina bók á mánuði
og eina litla rauðvín tvisvar í mánuði. Bækurnar og
eitt glas er hans flótti frá fátæku námsárunum inn í
draumaheim skáldsagnapersónanna.
Bækurnar gætu samt orðið fleiri heldur en ein bók
á mánuði. Það þarf þá að fórna íslenskunni og lesa á
ensku í staðinn. Tökum dæmi: Stúdentinn fer í Mál &
menningu á Laugaveginum og skoðar þar hátt og lágt
bækur af ýmsum toga. Finnur þar tvær enskar bækur
sem hann langar í, önnur kostar 3.300 krónur en hin
hafði því miður engar verðmerkingu. Eftir dálítla
umhugsun ákvað stúdentinn að athuga hvað þeir á
Amazon.com myndubjóðabækurnará.Samankostuðu
bækurnar 3.006 krónur og svo 7% virðisaukaskatt.
Ofan á það 210 krónur og tollmeðferðargjald 450
krónur sem gerir samtals 3.666 krónur fyrir
bækurnar báðar komnar til íslands.
Það má gefa sér það að óverðmerkta bókin í
bókabúðinni hafi ekki kostað 366 krónur þar sem hún
var bæði þykk og í flokki bóka sem ekki eru ódýrar.
Þannig að með þessum viðskiptaleiðum sparaði
stúdentinn sér stórfé þrátt fyrir virðisaukaskatt og
tollmeðferðargjald.
Bækur eru sérlega dýrar hér á landi og er það mikil
ráðgáta hvers vegna íslendingar, og þá sér í lagi
stúdentar, láta bjóða sér slíkt okurverð að kaupa
erlendar bækur af íslenskum bókabúðum. Það má
spara hellingspening i netkaupum og má þá jafnvel
kaupa tvær bækur á mánuði í stað einnar. En það eru
líka aðrar leiðir, svo sem Góði hirðirinn, Kolaportið og
fornbókasölur þótt úrvalið þar sé kannski ekki eins
gott. Þá vil ég einnig benda á hagkvæmasta kostinn;
bókasafnið.
En snúum okkur þá að rauðvíninu. Smáflaskan
sem stúdentinn drakk var ódýr, Aimery Cabernet
Sauvignon, 187 ml, og kostaði ekki nema 319 krónur,
enda smáflaska. Það er hægara sagt en gert að finna
ódýrt áfengi á íslandi. Þegar sá sem hér ritar var
ungur að árum var hægt að kaupa einn lítra af landa
á fimmtánhundruð krónur. Hins vegar var það hvorki
gott né óhætt, þar sem bragðið var eins og að sleikja
veturgamlan hundaskít og átti sá sem landans neytti
á hættu að verða blindur svo ég tali nú ekki um
blindfullur.
Svo er það möguleikinn að brugga sjálfur. Áhöldin
og hráefnið er kannski ekki svo dýrt ef miðað er við
afraksturinn, sem er um 30 flöskur í hvert skipti.
23 lítrar af Cabernet Sauvignon Vinterra ásamt
nauðsynlegum búnaði kostar um 15.230 krónur. En
stúdentinn verður að horfast í augu við það að litla
29 fermetra stúdentagarðsíbúðin bíður kannski ekki
uppá stórtæka víngerð svo ekki sé minnst á lyktina.
003. Einn rauður og stangheiðarlegur!
Víngerð rey nir líka á þolinmæðina og er sjaldan 1 sama
gæðaflokki og vín sem brugguð eru af fagfólki sem
hefur áralanga reynslu og þekkingu að baki.
Fríhöfnin er staður þar sem íslendingar hafa keypt sér
gæðavin af ýmsum gerðum árum samanákjarakjörum.
Flaska af 750 ml rauðvínsflösku í fríhöfninni kostar
frá 690 krónum uppí 11.990 krónur. Til samanburðar
má benda á að rauðvínsflaska af sömu stærð hjá
ÁTVR kostar frá 850 krónum uppí 33.990 krónur.
Sannkölluð paradís fyrir fátæka stúdentinn, eða hvað?
I fríhöfnina komast bara þeir sem eiga erindi til eða
frá landinu. Og miðað við fjárhag stúdentsins að þá á
hann ekkert erindi í gegnum paradísina. Möguleikinn
að láta kaupa fyrir sig er líka fjarlægur þar sem fáir láta
tækifærið að kaupa ódýrt áfengi framhjá sér fara og
kaupa þá yfirleitt allan tollinn til eigin nota. Og þegar
öllu er á botninn hvolft er verðmunurinn á ÁTVR
og fríhöfninni ekki það mikill að hann sé ómaksins
virði. Með tollum og gjöldum vínisins í ÁTVR er
álagning fríhafnarinnar jafnvel meiri en gerist og
gengur i samanburðinum. En ekki er öll von úti fyrir
bókaþyrsta stúdentinn sem á ekki fyrir rauðvíni
nema tvisvar í mánuði. Hann getur alltaf gert eins
og stúdentar hafa verið að gera árum saman, farið í
vísindaferð sem er reglulega á dagskrá Háskólans. Þar
getur stúdentinn svælt út eitt rauðvínsglas en hvort
það verður vel séð að taka glasið með sér heim verður
bara að koma í ljós.
Lausnin er því augljós. Ef stúdentinn vill flýja fátæku
námsárin inn í draumaheim skáldsagnapersónanna
með ódýrum hætti, verður hann að taka bókina á leigu
á bókasafninu og lesa hana með fríu rauðvíni í miðri
vísindaferð. ■