Stúdentablaðið - 01.05.2008, Side 17
002.Tveir vel skóaðir
002.Fjórir skósmiðir
^ r Æ :Æ áI
ER FRANZ FERDINAND
EKKI SKOSMIÐFTR?
Hún þekkir hann ekkert. Hann virðist vera lokaður
og lítið fyrir að tala um sjálfan sig eða lífsitt. Hann
er dularfulli náunginn í bekknum. Þessi sem mœtir
bara stundum og er ekki mikið að sœkjast eftir
samskiptum við bekkjarfélagana. Mœtti þó í partýið
eftir jólaprófin. Hann er forvitnilegur þar sem hann
segir svo fátt.
Skóladeginum er lokið. Þau ganga saman út úr
kennslustofunni. Hann er 25 ára, músíkgúrú. Hún 39
ára, þriggja barna móðir. Skyndilega snýr hann sér að
henni og spyr: „Get ég fengið far?" Henni dauðbregður
en segir að það sé velkomið.
Þau ganga saman út úr Odda. Hann langur og mjór.
Hún hnellin. Þau spjalla saman um eitthvað sem
hlýtur að hafa verið lítið merkilegt því hún man ekkert
hvað það var. Þegar þau koma að bílnum byrjar hún á
að afsaka draslið í honum. Föt og dót eftir krakkana
liggur eins og hráviði um allt. Á gólfinu farþegamegin
liggja Pepsí Max flöskur í massavís. Hún má aldrei
vera að því að taka til í bílnum. Hann er mjög aftarlega
á „to do“ listanum. Hann á hvorki bíl né börn.
Þau setjast inn í bílinn. Skömmu síðar eru
umræðuefnin þrotin. Þögn í bílnum. Óþægileg
þögn. í stresskasti við að finna umræðuefni man
hún allt í einu eftir verkefni sem þau skiluðu fyrir
nokkru og spyr:
- Við hvern tókst þú viðtal?
- Franz Ferdinand.
- Já, er það? En frábært. Hvernig þekkir þú hann?
Hann horfir á hana. Úr augum hans skín bara undrun.
Húnverðurvandræðalegogskilurekkiíviðbrögðunum.
Verður að redda þessu í einum grænum.
- Ertu ekki að meina Ferdinand skósmið. Er hann
kannski afi þinn?
Enn horfir hann á hana og skilur greinilega ekkert um
hvað hún er að tala.
Hún skilur enn minna í viðbrögðum hans og er
næstum pirruð þegar hún hreytir út úr sér:
- Ertu ekki að meina skósmiðinn sem var einu sinni
með skóverkstæði i Lækjargötunni? Upp úr 1980?
Nei. Franz Ferdinand er víst hljómsveit. Það má greina
undrun í röddinni þegar hann spyr: „Hefur þú aldrei
heyrt í Franz Ferdinand?"
Kafrjóð stamar hún: „Jú, jú, alveg örugglega. Ég man
bara aldrei hvað hljómsveitir heita!"
***
Þegar hann stígur út úr bílnum líður henni eins og
hún sé hundrað ára kelling. Hún áttar sig á að þarna
var á ferðinni hið margumtalaða kynslóðabil. Henni
finnst þetta alveg hræðilegt. Hún tilheyrir ekki
lengur ungu kynslóðinni. Hana var svo sem farið að
gruna það. Þegar hún lítur í spegil sér hún ekki 25 ára
manneskju og sálin er heldur ekki tuttuguogfimm. En
það er eitthvað sem best er að láta ónefnt. Rétt eins
og fyrir tuttugu árum mátti ekki tala um hvað það
gat verið erfitt og slítandi að ala upp börn. Allir létu
eins og barnauppeldi væri ekkert nema himnesk sæla.
Nú viðurkenna hins vegar flestir að gott sé að fá hvíld
frá krökkunum. Sem betur fer breyttist tabúið og nú
talar fólk óhindrað um allar hliðar barnauppeldisins,
jákvæðar og neikvæðar. Það er nefnilega betra
að horfast í augu við staðreyndir. Þannig verður
framþróun.
Aftur að aldrinum. í dag er því þannig farið að allir vilja
vera 25 ára endalaust. Æskudýrkunin i þjóðfélaginu
er takmarkalaus. Lifinu lýkur um fertugt (sérstaklega
hjá konum) og fólk sem komið er á þann aldur reynir
hvað sem er til að slá ryki í augu samborgaranna og
stundum í sín eigin líka. S viðtali við Vísi.is sagði
Ingólfur fylargeirsson fjölmiðlamaður, að hann hafi
aldrei fundið fyrir aldursmuni á sér og krökkunum í
sagnfræðináminu sem hann var að ljúka.
Að fenginni reynslu með Franz Ferdinand leyfir hún
sér að efast um orð Ingólfs. Hún getur ekki verið
einstök, einsdæmi hvað þetta varðar. Getur verið
að Ingólfur - nærri sextugur - hafi aldrei fundið
fyrir kynslóðabilinu í daglegum samskiptum sínum
við fólk sem var meira en helmingi yngra en hann?
Auðvitað getur maður átt vini á öllum aldri; átt í góðu
og gefandi vináttusambandi við bæði eldra og yngra
fólk - jafnvel í ástarsambandi. En halló - fólk hlýtur
samt stundum að finna fyrir aldurs- og þroskamun.
Hún man meira að segja eftir þvi að hafa fundið fyrir
kynslóðabili þegar hún var að deita einn sem var fimm
árum yngri þegar hún var 23 ára. Þau ætluðu að hafa
kósý vídeókvöld. Fóru saman út á leigu. Hún segir:
- Tökum Grease. Ég hef ekki séð hana síðan ég var tíu
ára. Manstu hvað hún var rómó?
Hann verður rauður og blár í framan. Niðurlútur segist
hann aldrei hafa séð Grease enda hafi hann bara verið
fimm ára þegar hún var sýnd i bíó!
Daginn eftir vesenið með Franz Ferdinand í bílnum
mætir hún í skólann. í frimínútum segir hún frá
óförum sínum. Bekkjarfélagarnir hlæja og segja henni
að Franz Ferdinand sé sko engin „nobody" hljómsveit
heldur skosk undrahljómsveit. Upplýsingarnar eru
ekki til að bæta kellingartilfinninguna sem hefur
plagað hana. Almáttugur, en sú hneisa!
Hún heyrir þau taka andköf: „Vá, hvernig náði hann
viðtali við þá?“ Ekki bætir þetta líðanina. Hún er
miður sín yfir því að vera orðin kelling. Henni sem
fannst hún enn 25 ára, eða varþað ekki?
Dagarnir líða og i undirmeðvitundinni mallar málið.
í saumaklúbbnum segir hún frá deginum sem hún
varð kelling. Aðallega til að vekja hlátur. Sumar
„stelpurnar" í klúbbnum eru alveg jafn blankar og hún
var þegar Franz Ferdinand er nefndur. Hún finnur til
léttis og ákveður að skella á borðið hugrenningum
sínum um aldurinn og kynslóðabilið:
- Kynslóðabilið er furðulegt fyrirbæri. Það virðist bara
virka í aðra áttina. Yngra fólkið finnur fyrir því en
þeir sem eldri eru viðurkenna það sjaldnast. Þeir eru
nefnilega fastir í frasanum „mér finnst alltaf eins og
égsé 25 ára!“
Þær gefa lítið fyrir þessa speki. Hún ákveður samt að
ganga skrefinu lengra og segir ögrandi:
- Er ekki bara eðlilegt að ég hafi ekki vitað hver Franz
Ferdinand er? Ég meina, það hlýtur að vera eðlilegt
að það sé munur á mér og 25 ára strákgemlingi? Ég
er 15 árum eldri en hann, hef önnur áhugamál og lifi
allt öðru lífi. Ég hef öðlast lífsreynslu sem gerir það að
verkum að ég get ekki verið 25 ára þó að ég fegin vildi.
Ég meina verðum við ekki bara að sætta okkur við að
við erum ekki 25 ára „forever"?
Enn minna verður um svör og nú hlæja þær ekki.
Þær snúa sér í snarhasti að öðrum og þægilegri
umræðuefnum.
Eins gott að hún sagði þeim ekki líka frá því að
þegar hún sér unga og sæta stráka i skólanum vakna
tilfinningar í brjósti hennar sem eiga helst eitthvað
skyltviðmóðurtilfinningu.Hjálp! Þærhefðusennilega
gert hana útlæga úr klúbbnum. Best að halda þeim
hugrenningum fyrir sjálfa sig enn um sinn! Kannski
má tala um þetta seinna - tímarnir brey tast. Ætli hún
sé alvarlega þjáð af fertugskrisunni eða er hún bara
ofurraunsæ? ■
©