Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.05.2008, Page 20

Stúdentablaðið - 01.05.2008, Page 20
I HEIMSÓKN f Fáar íbúðir eru jafn eftirsóttar og íbúðimar á Stúdentagörðum HÍ. Slegist er um þœr 722 íbúðir sem í boði eru og heyrst hefur að sumirbeiti brögðum til að hreppa hnossið. Krókódílatár, harmsögur og flutningur á lögheimili út fyrir borgarmörkin eru algeng vopn í baráttunni. Nú bíða um 700 stúdentar eftir að fá íbúðir á görðunum. Stúdentablaðið brá sér í heimsókn til fimm stúdenta sem búa í fyrirheitna landinu og fékk að líta herlegheitin augum. LÆKNASTUDENTINN A SKUGGAGARÐI 001. „Það var allt ofþröngt ígeymslunni til að lœra. Ég ákvað því að breyta henni bara í búr." 002. Fórnaði stofunni fyrir lesaðstöðu. „Það er mikilvcegt að hafa gott pláss við lesturinn." 003. „Ég stúkaði svefnaðstöðuna af með hillu. Það er ómögulegt að þurfa að horfa á rúmið á meðan maður les og á skrifborðið þegar maður er uppi í rúmi." 004. Jón Ragnar. Nafn Jón Ragnar Jónsson. Aldur: 25 ára Námsgrein: Læknisfræði Stærð ibúðar: 39 fm. Leiga: 50 - 60 þúsund. Kostir við að búa á garði: „Lúxus hvað þetta er miðsvæðis og hversu margar strætisvagnaleiðir eru í nágrenninu. Gott að vera sjálfstæður og búa einn. íbúðin er lítil og ég er því fljótur að þrífa. Gallar við að búa á garði: Það má ekki bora eða mála. Eldavélin mætti vera stærri og með bakaraofni. fbúðin er lítil þannig að ef það er mylsna á eldhúsgólfinu er hún líka inn í svefnherbergi. Jón Ragnar, þurftir eins og svo margir, að bíða lengi eftir því að draumurinn um íbúð á stúdentagarði yrði að veruleika. Hann flutti inn í haust eftir tveggja ára bið. „Égbjó í Hafnarfirði og var orðin þreyttur á eilífum ferðum á milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Tíminn sem fór í þau ferðalög var talinn í klukkustundum á hverjum degi. PÓLITÍKUSINN Á SKUGGAGARÐI 005. Bergþóra, Skuggagarðabúi. 006. Bókahillan er í miklu uppáhaldi hjá Bergþóru. Gömul kona las í blaði að Bergþóru vantaði bókahillu. Hún hafði samband oggaf Bergþóru hilluna. Bœðiþessi uppruni hillunnar ogþeir hlutir sem hún hefur aðgeyma vekja vœntumþykjuhjáBergþóru. 007. Rúmið er dýrasti innanstokksmunurinn hennar Bergþóru. Þaðkostaði 10.000 kr í Góða Hirðinum. Gardinurnar eru skœslegar. Þcer fundust á lager verslunarinnar Spútnik og kostuðu 1500 kall. Fyrir ofan rúmið hangir veggmynd sem Bergþóra keypti í Kína. Nafn: Bergþóra Snæbjörnsdóttir Aldur: 23 Námsgrein: Sálfræði Kostir við að búa á garði:„Það er ódýrara en á almennum markaði og allri nágrannarnir eru í sömu aðstöðu og þú. Mér finnst líka skemmtilegt þetta skandinavíska garðaandrúmsloft sem er hér. Maður getur hlaupið á milli íbúða ef eitthvað vantar og fengið lánaðar eldspýtur eða hvað það er sem vantar.“ Gallar við að búa á garði: Það er enginn bakaraofn í íbúðinni og það má ekki negla í veggina." Stærð ibúðar: 39 fm. Leiga á mánuði: ca. 54 þúsund með hita, rafmagni, interneti og þvottakorti. Bergþóra býr á Skuggagarði. Hún flutti inn í íbúðina splunkunýja haustið 2006. Bergþóra segist ekki hafa þurft að bíða lengi eftir íbúð. „Ég er utan af landi og er því í forgangshóp. Sumarið áður en ég fékk íbúðina bjó ég í Kína. Ég hringdi reglulega í félagsstofnunina og vældi. Ég var líka heppin að þetta haust voru teknar í notkun 96 nýjar íbúðir."

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.