Stúdentablaðið - 01.05.2008, Síða 34
FKÆGIR FYRIR
MEIRA OG ANNAÐ!
Flestir embœttismenn eru bara það og ekki mikið
meira.Þeirsinnasínumskyldumogþekkjasteinungis
fyrir það sem þeir gera en ekki fyrir hvað þerr eru.
Þeirra umráðasvceði er heima fyrir og sjáldan ncer
frcegðarljómi þeirra að skína út fyrir landamcerin.
Hlutverk embœttismanna er að sinna því starfi
sem þeir eru kosnir til að gegna og er það krafa
kjósenda að þeir standi sig. Það gerist þó stundum
að fram koma embœttismenn sem hafa orðið mun
meira en bara það. Sumir þessara manna hafa náð
staðli poppstjömunnar og einstaka hafa náð hcestu
hceðum og orðið að átrúnaðargoði. Hlutverk þessara
embcettismanna hefur stundum farið að snúast
meira um ímyndina heldur en það sem þeir hafa
fram að fcera í starfi. Þegar þetta gerist má velta þvi
fyrir sér hvort kjósendur séu að fá meira eða minna
fyrir atkvceðið en þeir kcera sig um. Hvort þetta sé
svo jákvcett eða neikvcett fyrir ímynd þjóðar fer eftir
ýmsu. Þessi þróun er síður en svo ný af nálinni; hér
að neðan eru dcemi um nokkra slíka menn sem hccfa
með mismunandi móti orðið frœgir fyrir annað og
meira en embcetti þeirra segir til um, og getur þá
hver dcemt fyrir sig.
BILL CLINTON
Forseti Bandaríkjanna frá 1993 til 2001, er og var
þekktur út um allan heim. Sem forseti Bandaríkjanna
öðlaðist hann sjálfkrafa heimsfrægð, en það er ekki
það sem hann er allra þekktastur fyrir. Það sem gerði
hann að umræðuefni um mest allan heim á timabili
var eflaust ekki það sem hann óskaði eftir, en það gerði
hann samt sem áður alræmdan og veitti honum meiri
athygli en hann hefði annars nokkurn tíma fengið.
Það snerist um samband hans við kvenkyns lærling
Hvíta hússins. Fárið í kringum það mál var með
ólíkindum og varla leið sá dagur að ekki var skrifað,
myndað eða talað um það mál. Clinton var sýknaður í
málinu en hann mun samt alltaf verða „forsetinn sem
átti í kynferðislegu sambandi við Monicu Lewinsky."
Þó svo að þetta hafi verið rosalegur skandall, þá
var þetta samt sem áður ekki eina kynferðismálið
sem hann lenti í. Fjórar aðrar konur ásökuðu hann
um kynferðislegt áreiti eða sögðu frá kynferðislegu
sambandi við hann á meðan hann var ríkisstjóri og
í forsetatíð hans og lenti hann í ýmsum málaferlum
vegna þeirra.
JOHN F. KENNEDY
Kennendy sá embættismaður sem hvað mest hefur
verið baðaður dýrðarljóma. í raun mætti segja að
líf hans og ímynd hafi verið sett á stall, þá og enn
þann dag í dag. Hann var forseti Bandarikjanna
frá 1961 til 1963. Hann er yngsti maðurinn og eini
kaþólikkinn sem kosinn hefur verið í þetta embætti í
Bandaríkjunum. Hann og kona hans, Jackie Kennedy,
voru svo vinsæl að þau voru í sama bát og kvikmynda-
og poppstjörnur sins tíma. Hjónin tengdust bæði inn í
poppkúltur, þar sem leikrit og tónlist voru samin um
þau, og inn í annað listalíf. Kennedy átti í meintum
ástarævintýrum við frægar konur, sú frægasta var án
efa Marilyn Monroe. Burtséð fráþví sem hann áorkaði
í sinni valdatíð þá er hann og hans líf þekktara fyrir
þann glamúr, klassa og þá ímynd sem hann og konan
hans bjuggu við.
BORIS JELTSÍN
Fyrrum forseti Rússlands frá 1991-1999 kom
heimsbyggðinni fyrir sjónir sem drykkjumaður sem
gat fundið upp á því að dansa og detta á samkomum.
Hvernig hann stóð sig sem forseti Rússlands skiptir
litlu máli; í huga margra er það hegðun hans sem
stendur upp úr. í hans valdatíð voru margar sögusagnir
um áfengisvanda hans og undarlega hegðun. Því hefur
verið haldið fram að hann hafi átt við einhverskonar
taugasjúkdóm að stríða sem orsakaði óeðlilega hegðun
og jafnvægisleysi. Hvort sem var þá var hann hinn
dansandi forseti í augum margra.
REINIRIII
furstinn af Mónakó, sat í pínulitlu ríki sem var að
niðurníðslu komið þegar hann kynntist og síðar
giftist hinni bandarísku leikkonu Grace Kelly. Allt í
einu voru augu alheimsins á honum og ríki hans og
hann fékk meiri athygli en nokkru sinni áður. Mónakó
og furstadæmi hans komust á kortið og hann varð
draumaprins margra, furstinn á hvíta hestinum sem
hitti almenningsstúlkuna.
RONALD REAGAN
Forseti Bandaríkjanna frá 1981 til 1989 hefði átt að
vera dæmi um embættismann sem var frægur fyrir
allt annað, en svo reyndist ekki. Hann var frægur
Hollywood leikari sem varð forseti. Málið er að hann
var svo áberandi og róttækur í sínu hlutverki sem
forseti að leikarafortið hans gleymdist.
NICOLAS SARKOZY
Sarkozy er nýjasta dæmið um embættismann sem
komst á kortið fyrir allt annað en það sem hann gerir.
Kannski er of snemmt að dæma hann út f rá verkunum
þar sem hann er nýkjörinn Frakklandsforseti en
það sem hefur virkilega komið honum á kortið eru
kvennamál hans. Stuttu eftir að hafa tekið við
embættinu skildi hann við konu sína og hneykslaði
það marga í heimalandi hans. Áður en fólk náði að
jafna sig var hann kominn með nýja konu upp á
arminn, fyrrum fyrirsætuna Carla Bruni og áður en
fólk náði að átta sig á því þá var hann búinn að giftast
henni. Þessi kvennamál hans hafa vakið athygli út
um allan heim og fylgst er með þeim hjónakornum
hvert sem þau fara. Henni hefur verið líkt við Jackie
Kennedy og Sarkozy hinn nýkjörni embættismaður
hefur fengið rækilega heimskynningu fyrir allt annað
en frammistöðu sína í starfi. ■
001, John F. Kennedy var m.a.a frœgur fyrir ástarsamband sitt við Marilyn Monroe. Sagan segir að snilld hans í rœðustólnum hafi spilað þar rullu.