Heimir : söngmálablað - 01.01.1936, Page 25
Karlakór Reykjavíkur 23
KARLAKÓR REYKJAVÍKUR 10 ÁRA.
EFTIR SVEIN G. BJÖRNSSON.
„Heimir“ liefir óskað eftir því, að eg ritaði um tiu
ára starf Karlakórs Reykjavíkur í blaðið. Mér er ljúft
að verða við þessum tilmælum, en þvi miður verð eg
vegna rúmleysis að drepa á fátt eitt af því, sem gerst
hefir í sögu félagsins á liðnum áratug.
Við stofnun Karlalcórs Reykjavikur virtist mörgum
sem nýtt líf færast í söngmál höfuðstaðarins. Sumir
töldu sig þó þurfa að drekka „glas af vatni“ til þess
að lcyngja þeirri hugsun einstakra manna, að söngsveit
þessi myndi að líkindum eiga framtíð fyrir sér og það
ekki óglæsilegri en ýmsar aðrar i landi hér. Við, sem
hófum starfið, gengum þess eigi duldir þegar á fyrsta
ári, að mikið verlc varð að vinna, uns sá timi kæmi,
að litið yrði með samhug og góðvilja lil þessa frum-
gróðurs, er hér var stofnað til með óreyndu og sundur-
lausu liði.
Milli söngstjóra og söngsveitar hefir frá öndverðu
verið svo gott samstarf, að eg tel engar líkur til þess,
að lcórinn myndi eiga langa framtíð fyrir sér, ef lians
nyti ekki við. Ákvarðanir söngstjóra og óskir liafa ver-
ið söngmönnum kórsins sem óskráð lög, og hver og einn
starfsmaður hefir talið sér skylt að leggja það á sig
fyrir félagið, sem hann hefir krafizt. Hann liefir því
áunnið sér óskorað traust og ástsæld allra félagsmanna
vegna prúðmannlegrar framkomu og starfshæfileilca.
En að söngstjóri sé fyrirmynd i hvívetna, bæði sem
listamaður og maður, er fyrsta skilyrðið fyrir góðum
og varanlegum árangri. Að eg hefi vikið hér að söng-
stjóranum i upphafi þessarar greinar, kemur m. a. til
af því, að hann átti frumkvæðið að stofnun félagsskap-
arins og lagði þar með hornsteininn að því starfi, sem
unnið er og mun verða unnið í framtíðinni af Karla-
kór Reykjavíkur.