Heimir : söngmálablað - 01.12.1938, Blaðsíða 28

Heimir : söngmálablað - 01.12.1938, Blaðsíða 28
100 H E I M I R öllum þeim fögnuði og listarunaði, er söngurinn veitti honum. Maðurinn er orðinn nýr og betri maður. Af þessu er ljóst, að söngurinn hefir menningargildi — er mikilvægt og þroskandi afl fjrrir manngildið og menningu þjóðanna. Saga mannkynsins og þá fyrst og fremst menningar- saga þess ber vitni um þessi göfgandi áhrif söngsins, eins og dæmin sanna. Einhver fegursti vitnisburður um sönglistina er kvæði Schuberts, „Til tónlistarinnar“ (An die Musik), sem Scliubert samdi dásamlegt lag við. All- ir þekkja kvæði Steingríms Thorsteinsson: Svífðu nú sæta söngsins englamál; angrið að bæta yfir mína sál. Tónaregn þitt táramjúkt, titri niður á hjartað sjúkt, eins og dala daggir svala þyrstri rós í þurlc. Ennfremur hefir kórsöngurinn þann kost, að liann safnar söngvinum saman lil að syngja, en þetla er ein- mitt gott og gagnlegt, því þelta treystir vináttu- og hræðrahöndin. Kórsöngurinn verður lil þess að kórinn verður eins og nokkurs konar smækkuð mynd af full- komnu samfélagslífi mannanna, með þeim skyldum sem það leggur mönnum á licrðar, skorðum, sem það setur þeim og frelsi, sem það gefur þeim. Ég ælla að útskýra þessa líkingu nánar. Margrödduð kórlög eru gerð af mörgum röddum eða lögum, sem sungin eru saman, venjulega l)assa, tenór, alt og sópran, eða þegar um karlakórslag er að ræða af 1. og 2. hassa og 1. og 2. tenór. Allar þessar raddir eða laglínur ættu lielzt að vera samin þannig, að hver rödd eða laglína sé sjálfstætl lag. Raddirnar eiga ekki að vera stælingar eða eftirhermur hver af annari. Þeg- ar ein röddin hækkar, á hin helzt að lækka. Ef ein- hver röddin hefir sérkennilegt hljóðfall, er æskilegt að

x

Heimir : söngmálablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.