Heimir : söngmálablað - 01.12.1938, Blaðsíða 33
H EI M I R
105
„Þeir syngja hvern tóninn á eftir öðrum, og sannarlega
verður aldrei neitt lag úr því!“ Þessi réttmæta aðfinnsla
er sprottin af þvi, að margir söngvarar vita ekki hvað iag
(melódía) er. Þeir lialda að lag sé ekkert annað en tóna-
röð — röð mismunandi tóna. En það verður að skoða lag
sem aðeins einn og alveg sérstæðan tón, sem breytir hæð
sinni og hljómblæ — og þetta her að skilja i orðsins fyllstu
merkingu.
Og nú kem ég að síðasta og veigamesta atriðinu i bel-
cantósöng: beiting tækninnar. Söngmaðurinn verður að
hafa mikla samúð með lögunum, sem liann syngur, en þó
jafnan að liafa fullkomið vald yfir sjálfum sér. Ást og
reiði, samúð og liatur, vonbrigði og gremja eru kenndir,
sem hann þekkir og notar sér til hjálpar til að gera sér
söngverkið innlíft, meðan hann er að kynna sér það. En
krefjist hlutverk hrifandi söngs og skapgerðarlistar, þá
verður hann að gæta þess, að tilfinningar lians komist ekki
i uppnám, svo hann missi ekki vald yfir röddinni, og mis-
takist þannig að sannfæra og lirífa áheyrendur. Því það
er gömul reynsla fyrir því, að sannar og sterkar tilfinning-
ar listamannsins eru eins áhrifalausar á leiksviði og ó-
sviknir skartgripir eru ósjálegir.
Það er þvi liverju orði sannara, sem segir i hinum fræga
Prolog í söngleiknum „Pacliacci“ eftir Leancovallo: „Tár-
in á leiksviðinu eru uppgerð, eru lýgi, andvörpin eru láta-
læti og hryggðin er tál“. Þannig hlýtur þetta lika að vera,
þvi ef t. d. söngkona yrði í sannleika svo snortin á leik-
sviðinu, að hún 3rrði grátklökk, þá væri hún komin í slikt
hugarástand, að hún gæti ekki svo að segja á næsla augna-
hliki, þegar söngvcrkið skiptir um svip, sungið rólega og
haft fullkomið vald yfir öndunarvöðvunum. Það er ekkí
undir því komið, að tilfinningar söngkonunnar séu slerk-
ar og sannar, heldur þvi, að áheyrandinn og áliorfandinn
finnist söngurinn sannur og álirifamikill. Belcantósöng-
iþróttin gerir þær kröfur til kunnáttu og listar söngvarans,
að söngurinn verki á áheyrandannn með sannfæringar-