Hugur - 01.01.2000, Page 110
108
Björgvin G. Sigurðsson
HUGUR
talinn einn fremsti íslenskufræðingur þessa lands og í hugum fólks
voru Sigurður Nordal og Islendingasögurnar tengd órofa böndum.
Mörg handrita hans litu aldrei dagsins ljós þar sem Sigurður brenndi
þau vegna óánægju með þau og vitna sumar greinar hans til um þá
minnimáttarkennd og það óöryggi sem bjó þrátt fyrir allt innra með
honum.
Sigurður batt miklar vonir við íslenska menningu og ætlaði henni
stórt hlutverk. í upphafi átti að vera um fimm binda verk að ræða en
varð aðeins eitt bindi að lokum. I inngangi að verkinu segir hann um
væntingar sínar: „Ég vildi að hún væri ný Crymogæa, málsvörn
íslendinga út á við á tímum óvenjulegs vanda og háska, greinargerð
fyrir dýrmætasta menningararfi þeirra, þar sem hismi væri skilið frá
kjarna ... leiðarvísan um liðna reynslu fyrir þá, sem vilja hugsa um
framtíð og samtíð, hvað þjóðin á best, þarfnast, skortir helst, um
hlutverk hennar, takmörk og takmarkanir. Eða með öðrum orðum:
Bókin er hugleiðing um vanda þess og vegsemd að vera íslendingur nú
á dögum, studd við þá þekkingu á fortíð þjóðarinnar, sem höfundur
hefur getað aflað sér og talið mestu varða.“
Líf og dauði þykir gefa hvað gleggsta og skýrasta mynd af lífs-
skoðun Sigurðar Nordals og heimssýn. Heimspekinnar kennir víða í
verkum hans. Hann kom eftirminnilega fram á sjónarsviðið í menn-
ingarlífi Reykjavíkur með flutningi fyrirlestra sinna, „Einlyndi og
marglyndi,“ sem hann vann með styrk frá Hannesar Árnasonar
sjóðnum. Hannes Árnason var kennari í forspjallsvísindum við presta-
skólann í Reykjavík og ráðstafaði fé því sem honum áskotnaðist með
annálaðri sparsemi sinni svo að ungir menn með áhuga á heimspeki
gætu notið. Fyrst til þriggja ára náms í heimspeki erlendis og síðan
til að halda opinbera fyrirlestra í Reykjavík fjórða veturinn. Sigurður
hlaut styrkinn og flutti fyrsta fyrirlesturinn í Bárubúð þann 28.
október árið 1918 og voru þeir opnir öllum.
Líkt og áður hefur verið getið um var Sigurður Nordal frumkvöðull
í ritun skáldsagna á íslandi. En þær eru merkilegar fyrir fleira en form
og stíl. í skáldskap hans, og þá sérstaklega Fomum ástum, koma lífs-
viðhorf hans skýrt fram. Mikilvægi þroskaleitarinnar og þeirra lífs-
hátta sem henni verða að fylgja að mati Sigurðar. Sagan um Álf frá
Vindhæli er því saga um þroska og þroskaleysi. Lífsviðhorf og ólíka
afstöðu fólks til veraldarinnar.