Búnaðarrit - 01.01.1929, Síða 12
6
BÚNAÐARRIT
II. Guðjón Guðlaugsson, gjaldkeri fjelagsins, las upp
reikning yflr tekjur og gjöld fjelagsins og eignareikning,
og skýrði frá einstökum atriðum lið fyrir lið, svo og
skrá yfir eignir sjóða, sem eru í vörslum Búnaðarfje-
lagsins. Vísast til reikninganna sjálfra um niðurstöður
þeirra.
Að lokinni skýrslu Guðjóns Guðlaugssonar gaf fundar-
stjóri kost á að gera fyrirspurnir og óska skýringa um
starfsemi fjelagsins í sambandi við reikningana. Kvaddi
sjer þá hljóðs Maggi Júl. Magnús, læknir úr Reykjavík,
og deildi á skipulag fjelagsins, einkum um skipun
stjórnarinnar og kosningar til Búnaðarþings, og kvað
alla stjórn fjelagsins hafa farið í hinum mesta ólestri
hin síðari árin. — Að lokinni ræðu sinni bar hann fram
tiilögu til fundaráiyktunar i samræmi við það, er fram
kom í ræðunni.
Fundarstjóri kvað þetta mál heyra undir 7. lið dag-
skrárinnar og yrði tillagan geymd þar til að þeim lið
kæmi, og ræða málshefjanda nú skoðuð sem framsögu-
ræða þá.
III. Bjarni alþm. Ásgeirsson flutti erindi um bún-
aðarmál á Alþingi. Skýrði hann frá lagafrumvöipum,
lagasetningum og öðrum ráðstöfunum síðasta þings um
landbúnaðarmál, svo sem skógrækt, varnir gegn gin-
og klaufaveiki, breytingar á lögum bændaskólanna, um
kynbætur nautgripa, um búfjártryggingar, hjúalög, um
sölu tilbúins áburðar, breytingar á jarðræktarlögunum,
um byggingar- og landnámssjóð. Að því búnu skýrði
hann frá helstu fjárveitingum, lánum og styrkveitingum
síðasta þings til landbúnaðar, bæði í sambandi við nýjar
lagasetningar og eldri lög o. s. frv.
Að lokum lýsti hann með skýrum rökum þörfinni á
og beinni nauðsyn, að löggjöfln og fjárveitingavaldið
rjetti landbúnaðinum örláta hjálparhönd, honum til efl-
ingar og þjóðinni til farsældar í framtíðinni. — Að
þessu var gerður góður rómur.