Búnaðarrit - 01.01.1929, Blaðsíða 21
BtfNAÐARRÍT
15
búnaðarmálastjóra, jafnhliða öðrum störfum, er hann
hefir á hendi, óviðkomandi fjelaginu, og mun að því
loknu gefa yfirlits-skýrslu um allar efnagreiningarnar,
og sýna fram á hvað má af þeim læra. — Til þessa
verks hefir nú verið varið alls um kr. 4000,00, og þar
af eru vinnulaun um 3700 kr.
Steingrímur skólastjóri Steinþórsson, þá kennari á
Hvanneyri, var ráðinn til þess að halda hrútasýningar
vestanlands haustið 1927. Var hann í þeim leiðangri
6 vikur og hjelt 25 sýningar.
Pálmi Hannesson, náttúrufræðingur, var ráðinn, frá
1. júní 1927 til jafnlengdar 1928, í þjónustu Bún.fjelags
íslands og Piskifjelagsins, tii þess að rannsaka veiðivötn
og leiðbeina um klak í þeim og veiði. Aftur var ráðn-
ing hans framlengd um eitt ár, frá 1. júní 1928. —
Fyrra árið voru mánaðarlaun hans ákveðin 250 kr.,
en seinna árið 200 krónur. Ferðakostnaður greið-
ist eftir reikningi, er samvinnunefnd fjelaganna sam-
þykkir. Sú nefnd var skipuð vorið 1927, til þess að
gera tillögur og ráðstafanir um starfsemi Pálma, semja
við hann og hafa eftirlit með störfum hans. I nefndinni
eru íiskifræðingur landsins (Bjarni Sæmundsson) for-
maður, forseti Fiskifjelagsins (Kristján Bergsson), og
búnaðarmálastjóri (Metúsalem Stefánsson) ritari.
Bjarni Runólfsson rafvirki, frá Hólmi á Siðu, var ráð-
inn í þjónustu fjelagsins nokkurn hluta sumars bæði
áiin, til þess að fara um sveitir og leiðbeina bændum
um byggingu rafstöðva, athuga aðstöðu til rafvirkjunar,
mæla vatnsaflið og gera áætlanir úm byggingarkostnað
stöðvanna. Fyrra árið var kostað um 750 kr. til leiðbeininga.
Þórir Guðmundsson, kennari á Hvanneyri, hefir eins og
áður, sjeð um fóðurtilraunir þær, er fjelagið hefir látið gera.
Til fyrirlestrahalds á bændanámsskeiðum 1928 voru
fengnir þeir Guðmundur Jónsson, frá Torfalæk, Gunnar
Árnason, Jón H. Þorbergsson, bóndi á Bessastöðum, og
Helgi Hannesson jarðræktarmaður, frá Suroarliðabæ.