Búnaðarrit - 01.01.1929, Síða 39
BÚNAÐARRÍT
33
lega úr viðkomandi sýslusjóði. Þó er kynbótabúið í Ólafs-
dal styrkt einvörðungu af Bún.fjel. íslands með 450 kr.
Fjelagið gekst fyrir stofnun þessa kynbótabús, til minn-
ingar um Torfa Bjarnason, en Dalasýsla heflr ekki feng-
ist til að veita því neinn styrk, hefði þó sýslubúum
átt að vera það kærkomið, að fá þannig tækifæri til
að heiðra minningu slíks manns sem Torfl var.
Eftirlits- og fóðurbirgðafjelögin, sem starfa eftir sam-
þyktum reglum, og senda Bún.fjel. íslands skýrslur sínar,
fá árlegan styrk, er nemur 10 kr. á hvern búanda á
fjelagssvæðinu, þó verður styrkurinn eigi nema 5 kr. á
þá búendur, sem fleiri eru en einn á jörðinni.
Auk þessara reglubundnu styrkveitinga til búfjárræktar
hefir fjelagiö látið halda áfram fóðurtilraunum með
beitarfje á nokkrum bæjum í Borgarfirði, og nú er
byrjað á fóðurtilraunum með kýr. Var byrjað í haust á
Vifilsstöðum, en á búi Thor Jensen’s á Lágafelli verður
byrjað nú um áramótin; og loks á Hvanneyri, þegar
nýju fjósbyggingunni þar verður lokið. Tilraunir þessar
«ru gerðar eftir fyrirsögn Þóris Guðmundssonar, kennara
á Hvanneyri, og undir hans umsjá. í síðasta árgangi
„Búnaðarritsins" er skýrsla frá honum, um þær til-
raunir, sem gerðar hafa verið á Hvanneyri veturna
1921—1927, aðallega í þeim tilgangi að finna fóðurgildi
nokkurra innlendra fóðurtegunda, einkum sjávarafurða.
Um þær tilraunir, sem nú er verið að gera, er að svo
stöddu ekkert að segja, en frá fyrirkomulagi þeirra
verður skýrt á Búnaðarþingi.
Margir kannast við Hvanneyrar-veikina, sem svo er
kölluð, og alkunna er, að ýmsir kvillar í sauðfje gera
víða stórtjón, og er það einkum kent lungnaormum.
Hefir fjelagið á þessum árum stuðlað nokkuð að rann-
sókn þessara kvilla í sauðfjenu, og hefir hug á að gera
það betur eftirleiðis, á einn eða annan hátt. Af að-
gerðum fjelagsins í þessu efni má nefna, að haustið
1927 gaf það út í sjerprentun, sem send var í allar
3