Búnaðarrit - 01.01.1929, Síða 101
BÚNAÐARÍUT
95
það svæði, sem nú er búið að sá í, og tryggja gróð-
urinn þar.
Árið 1927 voru unnin í þessari girðingu 19 dagsverk,
og kostnaður var þar alls kr. 190,20. Árið 1928 var
kostnaður þar kr. 391,00 og unnin þar 22 dagsverk.
5. Stóru- Vellir. Þar er girt svæði ca. 372 ha. Þar
var að eyðileggjast tún og engjar. Slægjur hafa þar
aukist að miklum mun. Sandfok er mikið farið að
minka og gróður vex með ári hverju. Árið 1927 voru
slægjur, fræ o. fl. kr. 791,70, en kostnaður alls kr.
1121 00, enda voru þá fornar slægjur og grasár gott.
En árið 1928 eru tekjur þar ekki nema ca. 150 kr., og
kostnaður alls kr. 553 30. Gtæðslan er þar á góðri leið
og sýnir ágætan árangur. Siðastliðið sumar var þar sjer-
stakt giasleysi. Svæðið var girt 1923 — 1924, og má
segja að gróður hafi þroskast þar furðu fljótt. Melfræi
var safnað þar t. d. í haust, ca. 60 sekkjum. Yinna
1927 ca. 72 dagsverk, en 38 dagsverk 1928.
6. Stóri-Klofi. Svæðið 237 ha. Girt árið 1925, mest
alt gróðurlaust. Búið að byggja þar ca. 5000 m. aí
görðum. Sað hefir verið þar allmiklu af melfræi nú í 2
ár, um 400 kg. hvort ár. — Kostnaður 1927 var kr.
'1822 07, og voru unnin þar það ár 171 dagsverk, en
árið 1928 voru unnin 165 dagsverk, og kostnaður það
ár kr. 2172 53. — Það, sem unnið hefir verið gefur von
um góðan árangur, en þar verður seint til eftirtekju,
því að þar eru vikursandar miklir, en litið af frjóefna,
ríkum jaiðvegi.
7. Skarfanes. Girt þar árið 1926. Sandfokið þá að
eyðileggja grasnytjar á Skarfaneslandi og Ósgrafarlandi.
Stærð girðingarinnar 932,2 ha. Nálega alt það land, sem
slegið hefir verið af Skarfaneslandi, var tekið inn í girð-
inguna. Sandfokið komið heim undir tún.
Árið 1927 var unnið nokkuð að garðagerð. Unnin 20
dagsverk. Kostnaður kr. 196,70. Árið 1928 unnin 78