Búnaðarrit - 01.01.1929, Blaðsíða 205
BtfNAÐARRIT
199
Allsherjarnefnd hafði málið til meðferðar. Framsögu-
maður Guðmundur Þorbjarnarson lagði fram svohlj. álit
nefndarinnar og tillögu, á þskj. 325 :
Nefndin hefir haft með höndum erindi þess efnis, að
haldinn verði almennur búnaðarmálafundur á Þingvöllum
1930, þar sem öll búnaðarfjelög á landinu ljetu fulltrúa
mæta. Er gert ráð fyrir því að þessi fundur stæði í tvo
daga. Að honum loknum skyldi fundarmönnum svo gef-
inn kostur á, að skoða ýmsa staði hjer sunnanlands,
austan fjalls og vestan, þar sem unnið hefir verið að
ýmiskonar umbótum í jarðrækt, húsabyggingum o. fl.
Er ætlast til að Búnaðarfjelag íslands beri þann kostnað,
er af þessu leiddi. Að lokum er farið fram á að Bún-
aðarþingið kjósi 3ja manna nefnd, til þess að sjá um
undirbúning þann er nauðsynlegur væri.
Nefndin getur að vísu fallist á, að slíkur fundur gæti
orðið, til gagns og ánægju íyrir þátttakendur, en lítur
hinsvegar svo á, að naumast geti orðið næði til slíks
fundar, meðan á sjálfum hátiðahöldunum stendur. Auk
þess getur þarna orðið um mikinn mannfjölda að ræða,
og mundi því fundurinn hafa allmikinn kostnað í för
með sjer, ef þeir, sem hann sætu, ættu engu til að
kosta. Þar sem nú Búnaðarfjelagið hefir í svo mörg horn
að líta, hvað snertir styrkbeiðnir og allskonar útgjöld,
lítur nefndin svo á, að gæta verði fylstu varúðar um
öll útgjöld í þessu sambandi. Sjer hún ekki ástæðu til,
að Búnaðarþingið kjósi nefnd þá, er getið er um í er-
indinu, en leggur fram svohljóðandi tillögu:
„Búnaðarþingið samþykkir, að fela stjórn Búnað-
arfjelags íslands og starfsmönnum þess, að gera
áætlanir um flokksferðir bænda í sambandi við
Alþingishátíðina 1930, og tilkynna þetta öllum
búnaðarfjelögum á landinu. Ferðirnar sjeu bundnar
við Suðurlandsundirlendið og nágrenni Reykjavíkur.